alt missing

13/09/2023

Blogg

Arna Harðardóttir nýr framkvæmdastjóri Helix

Arna Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Helix. Hún hóf störf hjá Origo í nóvember 2020 þar sem hún leiddi sölu- og markaðsstýringu á sviði heilbrigðislausna. Arna er þar öllum hnútum kunnug en hún hefur átt stóran þátt í stefnumótun sviðsins undanfarna mánuði og mun halda þeirri vinnu áfram í nýju hlutverki. 

Helix er á gífurlega spennandi vegferð sem ég er stolt að fá að leiða. Við búum yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á sviði heilbrigðislausna sem við munum nýta til að halda áfram að þjónusta íslenskt heilbrigðiskerfi og efla okkur enn frekar í nýsköpun og vöruþróun. Tækifærin innan heilbrigðis- og velferðartækni eru óteljandi og mikilvægt halda áfram þeirri góðu vinnu sem hefur átt sér stað síðustu ár. Ísland er í algjörri sérstöðu þegar kemur að innleiðingu á tæknilausnum innan heilbrigðiskerfisins og mikilvægt að nýta það tækifæri vel.

Arna Harðardóttir

Framkvæmdastjóri Helix

Arna hefur spennandi sýn á hvernig við getum notað tækni til að ná betri árangri og jákvæðari upplifun af heilbrigðiskerfinu bæði fyrir starfsfólk og samfélagið. Sú reynsla og þekking sem er fyrir hjá okkur og drifkraftur Örnu mun án efa skapa ný tækifæri á sviði heilbrigðistækni.

Jón Björnsson

Forstjóri Origo

Deildu gleðinni