Lausnir fyrir sálfræðiþjónustu

Við bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir sem henta fyrir sálfræðiþjónustu. Lausnirnar styðja við örugga skráningu í sjúkraskrá, samskipti, tímabókanir, fjarviðtöl og daglegan rekstur. Hægt er að sérsníða þær að stærð og þörfum hverrar stofu.

Silva

Lausnir sem henta ykkar starfsemi

Icon

Klínísk skráning og sjúkraskrá

Saga er útbreiddasta sjúkraskrárkerfi landsins. Kerfið tryggir samfellda og örugga skráningu upplýsinga.

Icon

Tímabókanir og fjarviðtöl

Silva einfaldar móttökuferlið frá tilvísun til bókaðs tíma og dregur úr handavinnu. Lausnin býður einnig upp á örugg fjarviðtöl.

Icon

Hópumsjón og eftirfylgni

Vaka gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að halda utan um hópmeðferðir, spurningalista og senda rafrænt fræðsluefni úr Sögu sjúkraskrá.

Meira svigrúm fyrir faglega vinnu

Minna álag með skilvirkum tímabókunum

Ein samræmd lausn sem sameinar bókanir, tilvísanir og samskipti. Starfsfólk fær skýra yfirsýn og gott utanumhald, og skjólstæðingar bóka og staðfesta tíma á einfaldan og þæginlegan hátt.

Örugg skráning samkvæmt lögum

Allar upplýsingar um skjólstæðinga eru vistaðar á öruggan hátt og aðgengilegar þeim sem hafa rétt til aðgangs í samræmi við lög um rafræna sjúkraskrá.

Sniðið að ykkar starfsemi

Lausnirnar eru aðlagaðar að þörfum hverrar starfsemi, óháð stærð eða sérsviði.

Betra flæði í móttöku með afgreiðslustöndum

Við bjóðum upp á sjálfsafgreiðslulausnir fyrir afgreiðslustanda sem gera innritun hraðari, öruggari og notendavænni. Lausnirnar bæta upplifun sjúklinga og hámarka nýtingu mannauðs í móttöku.

Við finnum lausnina saman