Heimahjúkrun
Við bjóðum upp á lausnir fyrir heimahjúkrun sem styðja við skipulag vitjana og daglega starfsemi. Starfsfólk getur skráð verkþætti, mælingar og framvindu í rauntíma með beinni tengingu við sjúkraskrá, þannig að upplýsingar eru alltaf uppfærðar og aðgengilegar á einum stað.
Kerfi sem styðja vitjanir og daglega starfsemi
Sjúkraskrá
Saga sjúkraskrá sem heldur utan um heilsufarsupplýsingar og tryggir að nýjustu gögn séu aðgengileg.
Skipulag og rauntímaskráning
Smásaga styður teymisumsjón, úthlutun vitjana og yfirsýn yfir dagskrá starfsmanna. Hægt er að staðfesta verkþætti, skrá framvindu og mælingar í rauntíma þannig að gögn uppfærist strax í Sögu.
Betri upplifun fyrir starfsfólk og skjólstæðinga

Sjálfvirk dagskrá
Dagskrá hvers starfsmanns myndast sjálfkrafa út frá vitjunum og verkefnum. Minni tími í skipulag, meiri tími hjá skjólstæðingum.
Bein tenging við sjúkraskrá
Smásaga tengist beint við Sögu sjúkraskrá, allar upplýsingar eru á einum stað, alltaf uppfærðar og aðgengilegar þeim sem þurfa.

Skráning á vettvangi
Starfsfólk skráir verkþætti og mælingar beint í Sögu á meðan á vitjun stendur, ekkert gleymist eða er skráð seinna við skrifborðið.