Fulltrúar frá Helix og hjúkrunarheimlunum Eir, Skjóli og Hömrum. Frá vinstri: Stefán Alfreð Stefánsson, Fjóla Bjarnadóttir, Arna Harðardóttir, Magnús Már Steinþórsson, Íris Dögg Guðjónsdóttir, Eybjörg Helga Hauksdóttir, Þórólfur Ingi Þórsson og Þórdís Hulda Tómasdóttir

21/02/2024

Blogg

Eir innleiðir lausnir sem auka gæði í þjónustu við íbúa

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar hafa undirritað samning við heilbrigðistæknifyrirtækið Helix um innleiðingu á lausnunum Iðunni og Lyfjavaka.  Lausnirnar munu bæta yfirsýn, auka öryggi íbúa og flýta fyrir skráningu á lyfja- og heilbrigðisgögnum. Þannig mun starfsfólk geta varið meiri tíma með íbúum hjúkrunarheimilanna, samfella í meðferð íbúa eykst og minni tími fer í stöðufundi og skráningar í gagnagrunnum.  

  

Iðunn og Lyfjavaki 

Smáforritið Iðunn nýtist starfsfólki á hjúkrunarheimilum til þess að skrá helstu upplýsingar um hjúkrunarmeðferðir íbúa í rauntíma. Í smáforritinu er meðal annars hægt að haka við framkvæmd tiltekinna verka, skrá niðurstöður mælinga, taka myndir af sárum til að meta framgang meðferðar og hringja beint í aðstandendur. Allar skráðar upplýsingar í smáforritinu færast sjálfkrafa inn í Sögu, sjúkraskrá íbúans.  

Lyfjavaki er rafrænt lyfjaskráningarkerfi sem gerir hjúkrunarfræðingum kleift að halda utan um skráningar á lyfjatiltekt og lyfjagjöfum íbúa. Sérþjálfað starfsfólk getur notast við smáforrit til að staðfesta lyfjagjafir sem hafa verið teknar til af hjúkrunarfræðingum. Með notkun Lyfjavaka er tryggt að rekjanleiki lyfjagjafa sé í samræmi við þær kröfur sem gilda um slíka skráningu. 

  

Aukinn tími í umönnun 

Rauntímaskráning með smáforritum eins og í Iðunni og Lyfjavaka hefur haft jákvæð áhrif á starfsemi hjúkrunarheimila. Skráning tekur styttri tíma, utanumhald og öryggi íbúa er aukið og það eru einnig dæmi um að stöðufundir hjá starfsfólki séu færri og styttri eftir innleiðingar. Þannig gefst meiri tími til að sinna íbúum og minni tími á bak við tölvuskjái.   

Við á Eir, Skjóli og Hömrum teljum mikilvægt að vera virkir þátttakendur í þróun heilbrigðislausna í okkar starfsemi og höfum góða reynslu af samstarfi við Origo (nú Helix) í gegnum árin. Við teljum ljóst að þessi innleiðing muni auka gæði í umönnunarþjónustu við okkar skjólstæðinga, auka öryggi í allri lyfjaumsýslu á heimilunum og auðvelda starfsfólki okkar að sinna sínum mikilvægu verkefnum.

Eybjörg Helga Hauksdóttir

Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Eir, Hömrum og Skjóli

Stafvæðing skráningar í heilbrigðiskerfinu er grunnurinn að því að hagnýta heilbrigðisgögn. Við höfum séð að skráning verður ítarlegri fyrir hvern íbúa þar sem Iðunn hefur verið innleidd og samhliða því hefur tíminn sem heilbrigðisstarfsfólk eyðir í skráningu styst umtalsvert. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Eir, Skjól og Hamra og vonumst til að geta létt undir starfsfólki heimilanna með lausnunum okkar.

Arna Harðardóttir

Framkvæmdastjóri Helix

Deildu gleðinni