
23/11/2026
Blogg
Samfelld þjónusta yfir landamæri: Helix á Nordic Hackathon
Eitt af stóru verkefnunum í heilbrigðisþjónustu er að finna leið til að auka flæði gagna innan kerfisins. Markmiðið með því er að koma í veg fyrir tvískráningu og endurtekningu og auka öryggi þeirra sem njóta þjónustunnar. Rafræn skráning í heilbrigðisþjónustu er komin mjög langt á Norðurlöndunum, en hún er ekki nýtt nægilega markvisst til að tryggja samfellu í þjónustu.
Áskorunin verður enn skýrari þegar sjúklingur þarf á heilbrigðisþjónustu að halda í öðru landi. Hvernig er tryggt að mikilvægar heilsufarsupplýsingar fylgi honum og séu aðgengilegar heilbrigðisstarfsfólki þegar á þarf að halda?
Þetta var viðfangsefni Nordic Hackathon í Svíþjóð, þar sem áhersla var lögð á samvirkni heilbrigðiskerfa og miðlun heilbrigðisupplýsinga milli landa. Einar Geirsson og Gunnar Ingi Widnes Friðriksson tóku þátt fyrir hönd Helix. Á aðeins tveimur dögum sýndu fyrirtæki og opinberar heilbrigðisstofnanir hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar sameinast um að leysa afmarkað vandamál.
Frá slysi á Íslandi til endurhæfingar í Svíþjóð
Verkefnið byggði á tilbúnu dæmi um Bertil, sænskan ferðamann sem slasaðist á Íslandi og var fluttur á sjúkrahús. Saga sjúkraskrá var tengd við sænskan gagnagrunn. Þannig hafði læknirinn sem tók á móti Bertil aðgang bæði að bráðamati úr sjúkrabílnum og að ofnæmisupplýsingum sem skráðar höfðu verið í Svíþjóð.
Við útskrift var útskriftarnóta send úr Sögu til Svíþjóðar. Þegar Bertil kom heim beið hans endurhæfingaráætlun í appi og heimilislæknir hans gat tekið við áframhaldandi meðferð. Upplýsingarnar fylgdu sjúklingnum alla leið, án tvískráningar.
Sjö teymi tengdu kerfin sín saman
Fjögur fyrirtæki stóðu að verkefninu í upphafi, en við lokakynninguna höfðu sjö teymi sameinast um lausnina. Meðal samstarfsaðila voru openFHIR, vitagroup, Platform24, Västra Götaland-héraðið (VGR) og iGrant.
Á lokakynningunni var sýnt í beinni hvernig kerfin miðluðu upplýsingum sín á milli, frá fyrstu viðbrögðum við slysi til áframhaldandi meðferðar í heimalandi sjúklingsins. Samhliða gafst tækifæri til að ræða við sænsk heilbrigðisyfirvöld og sérfræðinga um samvirkni, alþjóðlega staðla á borð við FHIR og openEHR og þróun evrópska heilbrigðisgagnasvæðisins (EHDS).

Tæknin er ekki stærsta hindrunin
Niðurstaða verkefnisins undirstrikar að tæknin til að miðla heilbrigðisupplýsingum milli kerfa og landa er þegar til staðar. Áskorunin felst ekki síður í samstarfi, sameiginlegum stöðlum og því að skapa forsendur fyrir öruggum upplýsingaskiptum.
Þegar fólk kemur saman með skýrt markmið er hægt að ná miklu á stuttum tíma.
Gunnar Ingi Widnes Friðriksson.
Tæknistjóri hjá Helix
Þátttakan var jafnframt dýrmætt tækifæri til að bera saman bækur við aðila sem vinna að sambærilegum verkefnum. Ísland stendur framarlega á ýmsum sviðum en getur einnig lært margt af reynslu annarra þjóða.
Helix þakkar samstarfsaðilum fyrir gott samstarf og lærdómsríka daga.
Deildu gleðinni