
01/07/2026
Blogg
Ný gervigreind í Silvu: Fáðu yfirsýn yfir stöðu stofnunarinnar á augabragði
Stjórnendur og starfsfólk á heilbrigðisstofnunum taka mikilvægar ákvarðanir allan daginn. Til að taka réttar ákvarðanir þurfa þau skýra mynd af stöðu rekstrarins. Eru lausir tímar að nýtast? Dreifist álagið jafnt milli starfsfólks? Er langur biðlisti farinn að myndast í ákveðina þjónustu? Svörin við þessum spurningum liggja oft fyrir í kerfunum.
Raunin er hins vegar sú að að það tekur tíma að ná þessum gögnum saman. Til að fá heildarmynd þarf oft að opna mörg dagatöl, fletta á milli skjáa, telja bókanir og bera saman upplýsingar handvirkt. Sú handavinna kostar dýrmætan tíma sem mætti betur nýta í þjónustu og ákvarðanatöku. Á meðan heldur reksturinn áfram að þróast og þegar yfirsýnin liggur fyrir getur staðan þegar hafa breyst.
Fáðu stöðuna strax án óþarfa handavinnu
Til að einfalda aðgengi að þessum upplýsingum er Silva nú tengd við gervigreind frá Anthropic. Í spjallglugga innan Silvu geta notendur spurt spurninga og fengið svör byggð á raungögnum úr kerfinu á örfáum sekúndum.
Í stað þess að fletta á milli skjáa eða taka saman upplýsingar handvirkt er til dæmis hægt að spyrja:
„Hvað eru margir lausir tímar í næstu viku?“
„Hversu margar bókanir eru á morgun?“
„Hvenær er næsti lausi tími í þessa þjónustu?“
„Hvaða starfsmaður er með flestar bókanir?“
Svörin byggja á nýjustu stöðu í kerfinu hverju sinni og svarar gervigreindin jafnframt alltaf á sama tungumáli og spurningin er lögð fram á.

Hvernig nýtum við gögnin?
Heilbrigðisstofnanir skortir sjaldnast gögn, þau eru til í kerfunum. Tækifærið liggur í að ná í þau á réttum tíma, svo ákvarðanir byggist á stöðunni eins og hún er núna, ekki eins og hún var þegar einhver náði að taka hana saman.
Ef lausir tímar sjást of seint tapast tækifærið til að nýta þá.
Ef álag dreifist ójafnt verður vinnudagurinn þyngri en hann þarf að vera.
Ef yfirsýn yfir stöðu bókana er óskýr verður erfiðara að forgangsraða rétt.
Ef starfsfólk þarf að taka saman upplýsingar handvirkt fer tími í umsýslu í stað þjónustu.
Markmiðið með gervigreindinni er því ekki að taka ákvarðanir fyrir notendur, heldur að styðja þær með skýrari og hraðari yfirsýn. Þannig færist tími frá upplýsingaleit yfir í skipulag, þjónustu og ákvarðanatöku.
Markmiðið er að auðvelda ákvarðanatöku og stuðla að betri nýtingu tíma og jafnara vinnuálagi.
Rakel Björt Jónsdóttir
Framendaforritari
Þú ræður alltaf ferðinni
Gervigreindin veitir upplýsingar en tekur aldrei ákvarðanir fyrir notendur. Hún breytir ekki bókunum, flytur ekki tíma og framkvæmir engar aðgerðir í kerfinu.
Ef gögn vantar eða ekki er hægt að svara spurningu út frá upplýsingum í kerfinu segir hún það hreint út í stað þess að giska.
Öryggi í fyrirrúmi
Öryggi sjúklingagagna er ávallt í forgangi. Þegar gervigreindin sækir upplýsingar vinnur hún aðeins með samantektargögn, svo sem fjölda bókana, fjölda lausra tíma, þjónustur og starfsfólk. Persónugreinanleg gögn, eins og nöfn, kennitölur eða tengiliðaupplýsingar skjólstæðinga, fara aldrei til AI-líkansins.
Gervigreindin þekkir því ekki einstaka skjólstæðinga og getur hvorki bent á né talið upp einstaklinga. Öll samskipti fara fram í lokuðu og auðkenndu umhverfi þar sem aðeins innskráðir notendur hafa aðgang.

Tækifærin eru fjölmörg
Gervigreind getur létt verulega undir með starfsfólki í heilbrigðisþjónustu þegar hún er innleidd með ábyrgum hætti. Með nýju gervigreindaraðstoðinni í Silvu geta stjórnendur og starfsfólk fengið mikilvægar upplýsingar á sekúndum í stað þess að eyða tíma í leit og handavinnu.
Þetta er aðeins fyrsta skrefið og við hlökkum til að þróa lausnina áfram með öryggi, einfaldleika og þarfir notenda að leiðarljósi.

Tímabókun og tilvísanastjórnun
Viltu kynna þér Silvu?
Silva sér um samskiptin frá tilvísun til bókaðs tíma svo starfsfólkið þitt geti einbeitt sér að skjólstæðingum í stað umsýslu.


Höfundur bloggs
Rakel Björt Jónsdóttir
Framendaforritari
Deildu gleðinni