
15/05/2026
Blogg
HIMSS 2026: Hvernig fylgja heilbrigðisgögnin þér á milli landa?
Ímyndaðu þér þessar aðstæður: Þú býrð á Íslandi en ert á ferðalagi í Danmörku. Þar úti lendir þú í hjartatruflunum og leitar á bráðamóttöku. Læknarnir vita ekki hvort þú tekur lyf, sért með undirliggjandi sjúkdóma eða hvort einhver ofnæmi séu til staðar.
En hvað ef þau gætu opnað sjúkraskrána þína og séð þar allar þínar heilsufarsupplýsingar? Engin gögn sem þarf að senda á milli, engin símtöl og mikilvægast af öllu, enginn dýrmætur tími fer til spillis. Þú færð þá meðferð sem þú þarft á réttum tíma og þegar heim er komið eru gögnin frá Danmörku aðgengileg í þinni sjúkraskrá.
Við munum fara nánar í það hvernig við getum komist á þennan stað á HIMSS 2026 í næstu viku í Kaupmannahöfn, en þar mun Helix taka þátt í sérstökum viðburði með öðrum leiðandi fyrirtækjum á sviði samvirkni gagna og EHDS reglugerðarinnar.
Gögn sem fylgja einstaklingnum
Heilbrigðiskerfið hefur í áratugi þróast í kringum stofnanir og kerfi. Gögn hafa verið geymd þar sem þjónustan er veitt og einstaklingurinn sjálfur oft haft takmarkað aðgengi og litla stjórn á eigin upplýsingum.
Framtíðarsýn Helix er að hanna hugbúnað þar sem einstaklingurinn eru settur í forgang og gefur þannig fólki betri aðgang að eigin heilbrigðisgögnum og með því meiri ábyrgð og yfirsýn yfir eigin heilsu. Með tilkomu European Health Data Space (EHDS) er þessi sýn Helix að verða hluti af sameiginlegri framtíðarsýn Evrópu og gert er ráð fyrir að heilbrigðisgögn geti fylgt einstaklingum milli kerfa, stofnana og landa á öruggan og staðlaðan hátt.
Þetta er ein stærsta breytingin sem er að eiga sér stað í evrópskri heilbrigðisþjónustu í dag. Til þess að þetta gangi upp þurfa kerfi að geta talað saman svo mikilvægar upplýsingar séu aðgengilegar þegar á reynir.

Skref fyrir skref, yfir landamæri
Á HIMSS munum við kafa dýpra í dæmið hér að ofan skref fyrir skref og ræða hvernig við komumst á þennan stað. Við munum sýna hvernig lausnin okkar Silva gefur einstaklingnum stjórn á eigin gögnum og getur veitt aðgang yfir landamæri á öruggan hátt.
Engin handvirk gagnatilfærsla, símtöl eða tölvupóstar með PDf viðhengi. Bara rétt gögn sem flæða þangað sem þeirra er þörf. Þetta er samvirkni í verki og við hlökkum til að sýna hvernig heilbrigðisgögn geta flætt á öruggan og staðlaðan hátt yfir landamæri og hversu aðgengileg tæknin er í raun. Á sama tíma hlökkum við til að deila okkar sýn og reynslu með leiðandi fyrirtækjum og samstarfsaðilum í Evrópu sem verða einnig á staðnum.
Kynntu þér Silvu

Deildu gleðinni