
30/04/2026
Blogg
Iceland Innovation Week: Samstarf lykill að nýsköpun í heilbrigðiskerfinu
Helix tók þátt pallborðsumræðum á Iceland Innovation Week í Austurbæjarbíói undir yfirskriftinni The Future of Health Data: Access, Regulation and Innovation.
Í pallborðinu sátu Arna Harðardóttir, forstjóri Helix, Steindór Oddur Ellertsson, sérnámslæknir í heimilislækningum, doktor í læknavísindum og framkvæmdastjóri Careflux, og Fabian Siegel, partner hjá LifeX Ventures, sem jafnframt stýrði umræðunum. Megin þema umræðunnar var hvernig gögn, gervigreind og markviss samvinna geta hraðað nýsköpun í heilbrigðiskerfinu.
Heilbrigðisgögn skapa grundvöll fyrir framfarir
Samtalið beindist að því hvernig hægt er að nýta heilbrigðisgögn á ábyrgan hátt til að knýja fram framfarir og bæta þjónustu. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi skýrs ramma, trausts og samræmdra ferla til að tryggja að gögnin nýtist á sem bestan hátt.
Heilbrigðisgögn eru gífurlega verðmæt. Til að nýta þau þurfum við skýrar leikreglur og sameiginlegan grunn. Þannig getum við hreyft okkur hraðar og skapað meira virði.
Arna Harðardóttir
Framkvæmdastjóri Helix
Gervigreind gefur svigrúm og styrkir mannlega þáttinns
Þátttakendur voru sammála um að gervigreind muni gegna lykilhlutverki í þróun heilbrigðisþjónustu, en ekki koma í stað mannlegra samskipta. Þvert á móti geti hún aukið svigrúm fagfólks til að sinna sjúklingum betur og styrkt mannlega þáttinn.
Steindór fjallaði um hvernig lausnir Careflux nýta gervigreind til að draga úr skriffinnsku og styðja við klíníska vinnu, meðal annars með sjálfvirkri aðstoð við skráningu. Slíkar lausnir skapa aukna skilvirkni og bæta upplifun bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.
Samstarf er forsenda raunverulegrar nýsköpunar
Eitt meginstef umræðunnar var mikilvægi samvinnu. Arna lagði sérstaka áherslu á að nýsköpun í heilbrigðiskerfinu verði til í sameiginlegu átaki þar sem ólíkir aðilar vinna saman að sama markmiði.
Raunveruleg nýsköpun verður til í samspili reynslu og hraða. Hún verður ekki til hjá einu fyrirtæki eða með einni lausn heldur í samvinnu þar sem allir stefna að sama markmiði.
Arna Harðardóttir
Framkvæmdastjóri Helix
Lykilatriði í innleiðingu nýsköpunar er að samþætta nýjar lausnir við daglegt vinnuflæði á einfaldan og skilvirkan hátt. Fyrirtæki á borð við Helix búa yfir djúpri þekkingu á innviðum heilbrigðiskerfisins og hvernig þeir tengjast, sem skapar sterkan grunn fyrir þróun nýrra lausna. Samstarf við sprotafyrirtæki, eins og Careflux, er þar sérstaklega verðmætt þar sem þau færa inn hraða, sveigjanleika og nýja nálgun sem ýtir undir framþróun.
Skýr stefna og samvinna hraða þróun lausna
Pallborðsumræðurnar undirstrikuðu mikilvægi skýrrar stefnu og aðgengis að gögnum. Með sameiginlegum leikreglum og einfaldari ferlum skapast betri skilyrði fyrir fyrirtæki til að þróa og innleiða lausnir hraðar. Niðurstaðan var skýr: með auknu samstarfi, ábyrgri nýtingu gagna og markvissri innleiðingu á tækni er hægt að hraða framþróun og byggja upp öflugra og sjálfbærara heilbrigðiskerfi til framtíðar.
Helix var einnig með bás á svæðinu þar sem við áttum fjölmörg góð samtöl við gesti um nýsköpun í heilbrigðiskerfinu. Við þökkum kærlega fyrir allar heimsóknirnar og áhugaverðar umræður. Það var sérstaklega ánægjulegt að finna þann kraft og grósku sem einkennir íslenskt nýsköpunarumhverfi.
Samvinna sem hraðar nýsköpun
Við trúum því að nýsköpun dafni þegar gögn, kerfi og fólk vinna saman. Þess vegna bjóðum við nýsköpunarfyrirtækjum að tengjast inn á Sögu.

Deildu gleðinni