alt missing

09/04/2026

Blogg

Helix á lista yfir framtíðarleiðtoga í íslenskri heilbrigðistækni

Helix er meðal þeirra fyrirtækja sem nefnd eru á lista Nelson Advisors, “20 Future Icelandic HealthTech and MedTech Leaders”, þar sem dregnir eru fram leiðtogar sem taldir eru móta framtíðina í íslenskri heilbrigðistækni.

Á listanum eru tuttugu leiðtogar úr íslensku nýsköpunarumhverfi á sviði heilbrigðistækni, þar á meðal frumkvöðlar, vísindamenn og stjórnendur fyrirtækja sem starfa á sviðum á borð við líftækni, stafræna heilbrigðisþjónustu og gervigreind. Þar á meðal er Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix.

Vaxandi nýsköpunarumhverfi

Listinn er hluti af greiningu á stöðu íslenskrar heilbrigðistækni, þar sem bent er á að Ísland hafi á skömmum tíma þróast úr öflugu rannsóknarumhverfi í alþjóðlega samkeppnishæfan vettvang nýsköpunar.

Einnig er fjallað um þá umbreytingu sem nú á sér stað, þar sem aukin áhersla er lögð á snjallari lausnir, gervigreind og rauntímaupplýsingar í þjónustu við sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk.

Öflugur grunnur sem styður áframhaldandi þróun

Í greininni er nefnt að Helix gegni lykilhlutverki í því að tryggja að stafrænn grunnur íslenska heilbrigðiskerfisins sé nægilega öflugur til að styðja við þróun og frekari nýsköpun sem fyrirtækin á listanum eru að byggja upp.

Það er ánægjulegt að vera á lista með þessum hópi. Mikil gróska er í heilbrigðistækni á Íslandi og spennandi að taka þátt í áframhaldandi þróun í samstarfi við þetta öfluga samfélag.

Tækifæri til samstarfs í nýsköpun

Við trúum því að nýsköpun dafni þegar gögn, kerfi og fólk vinna saman. Þess vegna bjóðum við nýsköpunarfyrirtækjum að tengjast inn á Sögu til þess að auðvelda aðgengi nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu.

Nánar
Silva

Deildu gleðinni