
11/05/2026
Blogg
Framtíð heilbrigðistækni rædd á Vitalis
Vitalis, stærsta heilbrigðisráðstefna Norðurlandanna, fór fram í Gautaborg nú á dögunum. Frá Íslandi voru margir frábærir fulltrúar og frá Helix tóku þátt þau Vallý Helgadóttir, forstöðumaður þjónustu og rekstrar, og Einar Geirsson, forstöðumaður nýþróunar.
Nýsköpun sem dregur úr kvíða barna
Ásamt því að starfa hjá Helix er Vallý framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins, NúnaTrix. NúnaTrix býr til fræðslutölvuleiki fyrir börn sem þurfa að gangast undir læknismeðferð og rannsóknir í þeim tilgangi að minnka kvíða og bæta heilsulæsi. Þau hjá Núnatrix voru bæði með bás ásamt því að Vallý hélt stutta kynningu á því hvernig NúnaTrix dregur út kvíða fyrir svæfingu, bætir skilning barna og aðlagast raunverulegum vinnuflæðum umönnunar.

Ísland og samtengingar í brennidepli
Einar tók þátt í ýmsum umræðum ásamt því að koma fram í pallborði um þróun heilbrigðistækni á Norðurlöndunum. Hann tók saman það sem helst sat eftir hjá honum.
Umræður um samtengingar milli kerfa voru í forgrunni þar sem áherslan er ekki á eitt risakerfi sem leysir allt, heldur á að ólík kerfi vinni saman. Þar vakti íslenska nálgunin sérstaka athygli þar sem Hekla og uppbygging samtenginga á Íslandi kveikti bæði forvitni og jákvæð viðbrögð.
Áskoranir í innleiðingu sjúkraskrárkerfa í Svíþjóð
Mikil umræða var um sjúkraskrárkerfi í Svíþjóð en flest héruð í Svíþjóð hafa skipt yfir í ný sjúkraskrárkerfi á síðustu árum og víða hafa komið upp töluverð vandamál tengd innleiðingu. Sum héruð hafa hætt við verkefni eftir kostnað upp á tugi milljarða og eru komin aftur á byrjunarreit. Önnur hafa innleitt ný kerfi en glíma við hægagang, rekstrarvanda og jafnvel alvarleg atvik.
Einar Geirsson
Forstöðumaður nýþróunar hjá Helix
Í síðustu viku fjallaði Uppdrag granskning á SVT ítarlega um áskoranir tengdar þessum innleiðingum.
Gervigreind í daglegu starfi heilbrigðisstarfsfólks
Gervigreind var áberandi og nefndi Einar að umræður tengdar henni séu jarðbundnari og snúist um daginn í dag: hvar tæknin virkar, hvernig hún styður heilbrigðisstarfsfólk og hvaða virði hún skilar í klínísku og rekstrarlegu umhverfi.
Við þökkum fyrir frábæra daga á Vitalis 2026. Við hjá Helix erum stolt af því að innan okkar raða er fólk sem brennur fyrir því að bæta heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar, bæði í daglegum störfum sínum og í eigin nýsköpunarverkefnum.

Deildu gleðinni