
02/03/2026
Blogg
Helix fær ISO 27001 vottun fyrir upplýsingaöryggi
Helix hefur hlotið ISO 27001 vottun fyrir upplýsingaöryggi sem er alþjóðlega viðurkenndur staðall sem staðfestir að fyrirtækið fylgi ströngustu kröfum um vernd gagna, áhættustýringu og örugga meðhöndlun upplýsinga. Fyrir heilbrigðistæknifyrirtæki sem vinnur með viðkvæm gögn er þetta ekki formsatriði, heldur grundvallarþáttur í ábyrgri starfsemi.
Traustur grunnur og samfella í öryggismálum
Helix byggir á langri reynslu af starfi í umhverfi með ströngum kröfum um upplýsingaöryggi, þar á meðal frá þeim tíma sem fyrirtækið var hluti af Origo. Sú reynsla lagði mikilvægan grunn að vegferð Helix í öryggismálum og endurspeglast í ISO 27001 vottuninni sem áframhaldandi skuldbinding til öryggis og ábyrgðar.
Guðmundur Sigurðsson, öryggisstjóri Helix, hefur leitt þessa vinnu og tryggt að ferlar og ábyrgð séu til staðar innan fyrirtækisins.

Við sjáum fram á að þessi nálgun styrki öryggis- og samræmisgetu okkar til muna, sérstaklega með hliðsjón af því reglugerðarflóði sem fyrirséð er á næstu árum. Við höfum því lagt sérstaka áherslu á lykilatriði eins og stöðuga vöktun, viðbragðsgetu og rekjanleika, og erum t.a.m. nú þegar með virka SOC vöktun og í nánu samstarfi við öryggisfyrirtækið Syndis.
Guðmundur Sigurðsson
Öryggisstjóri Helix
Undirbúin fyrir auknar kröfur
Kröfur um upplýsingaöryggi og samræmi fara sífellt vaxandi bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Helix fylgist náið með þeirri þróun og leggur áherslu á að vera vel undirbúið fyrir breytingar í regluverki á sviði öryggis og rekstrar.
Samhliða þessu viljum við undirbúa okkur undir NIS2 tilskipunarinnar, sem gerir auknar kröfur um öryggi, áhættustýringu og atvikaviðbrögð hjá mikilvægum og stafrænum þjónustuaðilum. Vottunin er því mikilvægt skref í rétta átt til að tryggja að við séum vel undirbúin fyrir auknar kröfur um stjórnun, eftirlit og samræmi við komandi regluverk.
Guðmundur Sigurðsson
öryggisstjóri Helix
Öryggi sem hluti af framtíðarsýn Helix
Helix þróar tæknilausnir sem bæta heilbrigðisþjónustu og styðja fagfólk í daglegu starfi. ISO vottunin er staðfesting á þeirri sýn að öryggi, gæði og ábyrgð séu órjúfanlegur hluti af öllu sem við gerum.
Deildu gleðinni