alt missing

16/10/2026

Blogg

Sjálfvirk afgreiðsla lyfjaskírteina nú komin í Sögu

Nýtt umsóknarform fyrir lyfjaskírteini er nú komið í Sögu og styður við sjálfvirka afgreiðslu umsókna hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Með breytingunni geta umsóknir sem uppfylla skilyrði SÍ verið samþykktar samstundis, sem styttir biðtíma sjúklinga og dregur úr þörf fyrir eftirfylgni hjá heilbrigðisstarfsfólki.

Frá og með 1. nóvember 2026 skulu allar umsóknir um lyfjaskírteini fara í gegnum nýtt umsóknarform SÍ, en eldra formi verður lokað á sama tíma.

Lyfjaskírteini samþykkt á augabragði

Þegar umsókn uppfyllir skilyrði fyrir sjálfvirkri afgreiðslu virkjast lyfjaskírteinið samstundis í apótekum. Það þýðir að sjúklingar geta fengið greiðsluþátttöku strax og leyst lyfið út án óþarfa biðar eftir samþykki. Þetta getur skipt sköpum fyrir fólk sem þarf á lyfjunum að halda og veitir skjótari aðgang að nauðsynlegri meðferð.

Umsóknir sem ekki falla undir sjálfvirka afgreiðslu verða áfram yfirfarnar af starfsfólki SÍ. Gert er ráð fyrir að nýja fyrirkomulagið flýti einnig fyrir yfirferð þeirra, þar sem umsóknir sem uppfylla skilyrðin eru afgreiddar sjálfvirkt. Jafnframt verður skráning einfaldari og handvirk vinna við umsóknarferlið minni.

Nýja umsóknarformið er tilbúið til notkunar í Sögu nú þegar.

Sjálfvirk afgreiðsla lyfjaskírteina er stórt skref í stafrænni vegferð Sjúkratrygginga. Með sjálfvirkninni er hægt að samþykkja lyfjaskírteini samstundis þegar umsóknir uppfylla tilskilin skilyrði, sem gerir fólki kleift að leysa út lyfin sín í apóteki án tafar með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Breytingin einfaldar störf heilbrigðisstarfsfólks, dregur úr umsýslu og eykur skilvirkni í öllu kerfinu.

Heiðar Atli Emilsson

Leiðandi sérfræðingur hjá Sjúkratryggingum Íslands

Heiðar Atli, Leiðandi sérfræðingur hjá Sjúkratryggingum Íslands
Heiðar Atli, Leiðandi sérfræðingur hjá Sjúkratryggingum Íslands

Getum við aðstoðað?

Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi nýtt umsóknarform fyrir lyfjaskírteini í Sögu ekki hika við að hafa samband.

Þjónustuborð
Kona stendur við tölvu

Deildu gleðinni