
28/11/2022
Blogg
Notendaráðstefna heilbrigðislausna Origo
Notendaráðstefna heilbrigðislausna Origo var haldin 23. nóvember síðastliðinn. Ráðstefnan er tækifæri okkar til að segja notendum frá þeim verkefnum sem við höfum verið að vinna að og hvað er framundan. Metþáttaka var í ár en rúmlega 180 skráðu sig bæði í sal og streymi.
Framtíðarsýn Heilbrigðislausna
Hákon Sigurhansson, framkvæmdarstjóri heilbrigðislausna, opnaði ráðstefnuna og Arna Harðardóttir, sölu- og markaðsstjóri heilbrigðislausna, var fundarstjóri dagsins.
Við höfum haldið árlega Notendaráðstefnu Heilbrigðislausna en það er frábær vettvangur fyrir okkur og okkar viðskiptavini til að koma saman og ræða þau fjölmörgu tækifæri sem eru í umhverfinu og hvernig við getum unnið að þeim saman.
Hákon Sigurhansson
Framkvæmdarstjóri heilbrigðislausna Origo
Fræðandi og skemmtileg erindi
Dagskráin samanstóð af áhugaverðum og fróðlegum erindum frá fimm sérfræðingum innan heilbrigðistæknigeirans.
Magnús Már Steinþórsson, vörustjóri heilbrigðislausna, kynnti miðlægt lyfjakort og fræddi fundargesti um þær breytingar sem innleiðing á lyfjakortinu mun hafa í för með sér. Miðlægar lyfjaupplýsingar munu auka yfirsýn, minnka kostnað og spara verðmætan tíma heilbrigðisstarfsfólks. Aukin þróun á rafrænum lausnum í lyfjamálum hefur verið í miklum forgangi hjá heilrbigðislausnum síðustu ár með það að markmiði að auka öryggi í lyfjagjöfum.

Helena Melax, verkefnastjóri hjá heilbrigðislausnum, fór yfir miðlæga biðlista og tilvísanir. Hún útskýrði hvernig það getur hjálpað heilbrigðisfólki og stofnunum að hafa betri yfirsýn yfir starfsemi sína og á sama tíma hvernig þjónustustig skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins er aukið.

Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Tiro, kynnti máltæknilausn þeirra og hvaða möguleika við sjáum í að nýta máltækni inn í Sögu til að auðvelda og flýta skráningu heilbrigðisfólks.

Elsa Særún Helgadóttir, verkefnastjóri heilbrigðislausna Origo, kynnti lausn sem hefur verið í þróun í samstarfi við krabbameinsdeildina á Landspítalanum. Hún sagði frá því hversu mikilvægt það er að styrkja samskiptabrúnna milli skjólstæðinga og heilbrigðisstarfólks. Það sé mikilvægt í því ferli til að valdefla einstaklinga í sinni meðferð.

Að lokum kynnti Þórólfur Ingi Þórsson, vörustjóri hjá heilbrigðislausnum, lausn sem við erum að þróa áfram í nánu samstarfi með Hrafnistu. Þar stefnum við að koma á rauntíma skráningu í allri umönnun íbúa öldrunarheimila. Þetta er gríðarstórt skref í átt að því að valdefla starfsfólk hjúkrunarheimila, auka öryggi íbúa þess og auka traust aðstandenda til umönnunaraðila þeirra nánustu.

Deildu gleðinni