
04/03/2026
Blogg
Saga sem innviður: lykill að hraðari nýsköpun í íslensku heilbrigðiskerfi
Þegar Saga sjúkraskrá er nefnd hugsa margir um viðmót, skjámynd og gamlan grunn. Kerfi sem „allir þurfa að nota“. En sú mynd er aðeins toppurinn á ísjakanum.
Saga er einn mikilvægasti stafræni innviður íslensks heilbrigðiskerfis. Hún fylgir Íslendingum frá meðgöngu til moldar og styður daglega við þúsundir notenda og milljónir ferla sem eru forsenda öruggrar, samfelldrar og skilvirkrar heilbrigðisþjónustu

Að takast á við tækniskuld opnar raunveruleg sóknarfæri
Við drögum ekki fjöður yfir það að Saga byggir að hluta á gömlum merg. Framendinn er umfangsmikill, með 67 módúlum og fjölbreyttum notendahópum. Þar liggur tækniskuld sem þarf að vinna markvisst niður.
En undir yfirborðinu er sterkur bakendi, traustur rekstur og áratuga reynsla af samþættingum og innleiðingum. Saga er því traustur og mótaður grunnur sem við getum byggt áfram á.
OECD bendir á að Ísland sé framarlega í stafrænni þróun almennt, en fjárfesting í heilbrigðistækni sé verulega undir meðaltali Evrópu. Nýjar evrópskar reglugerðir gera það ljóst að það er ekki svigrúm til að bíða.

Aðgengileg og samvirk gögn eru forsenda framfara
Með tilkomu European Health Data Space (EHDS) er verið að marka skýra stefnu í Evrópu um hvernig heilbrigðisgögn eiga að vera aðgengileg, nýtanleg og örugg, bæði innan landa og yfir landamæri.
EHDS leggur áherslu á:
Samvirkni milli kerfa
Stöðlun gagna
Öryggi og skýra ábyrgð
Að gögn nýtist bæði í þjónustu og þróun
Staðlar á borð við FHIR og openEHR skapa sameiginlegt tungumál milli kerfa og gera mögulegt að tengja lausnir án þess að fórna öryggi eða gæðum, og opna þannig rými fyrir áframhaldandi þróun og nýsköpun.
Saga sem sameiginlegur grunnur nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu
Til að hraða framþróun þurfum við ekki endilega að byrja frá grunni. Við þurfum að nýta þann grunn sem við eigum.
Saga er sameiginlegur innviður sem hægt er að byggja ofan á en ekki lokað kerfi sem þarf að vinna í kringum.
Með opnum stöðlum á borð við FHIR, í takt við OpenEHR og evrópska þróun (EHDS), getum við skapað umhverfi þar sem:
Lausnir tengjast kjarnagögnum á staðlaðan hátt
Notendur hafa eina gátt og eina innskráningu
Fyrirtæki geta nýtt þann grunn“ og innviði sem þegar eru til staðar
Innleiðingar verða einfaldari og hraðari
Þetta snýst ekki um að Saga geri allt. Heldur að hún sé traustur grunnur sem aðrir geta byggt á. Ávinningurinn er skýr: meiri samvirkni, minni sérsmíði og raunhæfur farvegur fyrir íslenskt hugvit til að ná inn í kerfið.
Héðinn Jónsson
Forstöðumaður þróunar hjá Helix
Sameiginleg sýn getur gert smæð Íslands að styrk
Smæð Íslands gefur okkur einstakt forskot: stuttar boðleiðir, nálægð milli hagaðila og raunhæfan möguleika á samræmdri stefnu. Saga er einn sterkasti stafræni innviður sem við eigum.
Ef okkur tekst að þróa hana áfram sem opinn og samvirkan grunn getum við:
Styrkt fagfólk í daglegu starfi
Einfaldað upplifun einstaklinga
Hraðað innleiðingu nýrra lausna
Skapað raunverulegt rými fyrir nýsköpun
Tökum samtalið um framtíð innviðanna
Við verðum að auka fjárfestingu í heilbrigðistækni og nýta tækifærin sem eru handan við hornið, og til þess þurfum við sameiginlega sýn á þá innviði sem við byggjum á.
Samtalið þarf að vera opið og framsýnt, við þurfum virkt samtal með fagfólki, nýsköpunarfyrirtækjum og stjórnvöldum. Við trúum því að Saga er brúin milli stöðugleika og nýsköpunar. Spurningin er hvort og hvernig við nýtum tækifærið.

Höfundur bloggs
Héðinn Jónsson
Forstöðumaður þróunar
Deildu gleðinni