
17/03/2026
Blogg
Silva tilnefnt til íslensku vefverðlaunanna í flokknum tækninýting ársins
Silva hefur hlotið tilnefningu til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum Tækninýting ársins. Verðlaunin eru veitt af Samtökum vefiðnaðarins (SVEF) og verða afhent í Hörpu fimmtudaginn 26. mars.
Silva er lausn sem einfaldar tímabókanir og tilvísanir í heilbrigðisþjónustu. Skjólstæðingar geta sjálfir bókað og staðfest tíma, sem dregur úr símtölum og handavinnu og styttir biðlista.
Við erum afar stolt af þessari tilnefningu. Með Silvu erum við að einfalda flókið ferli og gefa starfsfólki meiri tíma fyrir það sem skiptir mestu máli, þjónustuna sjálfa.
Einar Geirsson
Forstöðumaður nýþróunar hjá Helix

Daglegur tímasparnaður með skilvirkari móttöku
Með Silvu fæst betra flæði í móttöku. Allar tilvísanir og bókanir eru á einum stað og starfsfólk fær skýra yfirsýn yfir biðlista og forgangsröðun. Þetta gerir starfsfólki kleift að einbeita sér meira að þjónustu og minna að utanumhaldi.
Allt sem þarf fyrir einfaldari móttöku
Bein bókun í dagatöl Sögu
Sjálfsafgreiðsla fyrir skjólstæðinga
Sjálfvirk tilvísanastjórnunn með forgangsröðun
Rauntímayfirsýn yfir biðlista
Ótakmarkaður fjöldi notenda
Örugg hýsing og gagnavarsla
Virkar sem sjálfstæð lausn
Nánar um Silvu hér
Deildu gleðinni