alt missing

25/11/2026

Blogg

Níu sprotar í heilsutækni kynntu lausnir sínar í Shark Tank hjá Helix

Þriðjudaginn 24. nóvember fór fram svokallaður Shark Tank hjá okkur í Helix þar sem teymin úr KLAK health hraðlinum kynntu lausnir sínar. Hvert teymi fékk 3–4 mínútur til að kynna verkefnið sitt og svaraði í kjölfarið spurningum frá sérfræðingahópi á okkar vegum.

Það var virkilega gaman að fylgjast með kynningunum og kynnast þeim verkefnum sem teymin vinna að. Lausnirnar voru fjölbreyttar, vel útfærðar og áhugavert að sjá hvernig teymin nálgast ólíkar áskoranir í heilbrigðisþjónustu.

Viðskiptahraðall fyrir sprota í heilsutækni

KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall á vegum KLAK – Icelandic Startups fyrir sprotafyrirtæki í heilsutækni. Í ár taka níu fyrirtæki þátt í hraðlinum og fá þau sérhæfða fræðslu, leiðsögn sérfræðinga, tengsl við fjárfesta og aðstöðu í Grósku. Hægt er að kynna sér verkefnin sem taka þátt í ár hér.

Verkefnin spanna breitt svið heilsutækni, allt frá lækningatækni og líftækni til stafrænna heilsulausna og forvarna.

Samstarf skapar tækifæri til nýsköpunar

Við hjá Helix erum stolt af því að vera bakhjarl KLAK health og fá tækifæri til að styðja við frumkvöðla í heilsutækni. Stuttar boðleiðir á Íslandi og nálægð milli frumkvöðla, heilbrigðisstarfsfólks og tæknifyrirtækja skapa góð tækifæri til samstarfs og þróunar nýrra lausna í heilbrigðisþjónustu.

Við þökkum teymunum fyrir áhugaverðar kynningar og KLAK fyrir gott samstarf. Við hlökkum til að fylgjast með teymunum og sjá hvernig verkefnin þróast áfram.


Deildu gleðinni