Fólk á Helix skrifstofunni

17/03/2026

Blogg

Helix æfir viðbrögð við netárás í samstarfi við Syndis 

Helix æfði nýverið viðbrögð við netárás í samstarfi við netöryggissérfræðinga Syndis á svokallaðri skrifborðsæfingu. Í æfingunni tóku fulltrúar frá Helix þátt með það að markmiði að efla viðbragðsgetu fyrirtækisins og tryggja örygga og góða þjónustu. 

Æfing sem styrkir rekstraröryggi Helix 

Æfingin byggði á sviðsmynd þar sem gagnagíslataka hófst á heimatölvu starfsmanns og barst þaðan inn í innviði Helix. Þátttakendur þurftu að meta umfang atviksins, ákveða virkjun neyðarhóps og huga að samskiptum við viðskiptavini og eftirlitsaðila, auk þess að taka afstöðu til mögulegrar lausnargjaldskröfu. 

Sviðsmyndin var unnin í skrefum og fengu þátttakendur afmarkaðan tíma til að greina stöðu og ákveða næstu aðgerðir, líkt og gerist í raunverulegu atviki. 

Skýr hlutverk og samhæfð viðbrögð 

Æfingin var sett upp til að prófa skilning á hlutverkum og ábyrgð í atvikastjórnun, æfa miðlun upplýsinga og styrkja ákvarðanatöku þegar upplýsingar eru takmarkaðar. Jafnframt var lögð áhersla á samhæfingu við tækniteymi og öryggisráð og viðbrögð við mögulegri gagnalekahótun. 

Ragnar Sigurðsson, Upplýsingaröyggisráðgjafi Syndis
Ragnar Sigurðsson, Upplýsingaröyggisráðgjafi Syndis

Skrifborðsæfingar eru lykilatriði til að byggja upp raunverulega viðbragðsgetu gegn netógnum. Þegar unnið er með upplýsingar á borð við sjúkraskrárgögn skiptir sköpum að prófa ferla reglulega með krefjandi sviðsmyndum. Helix tók þetta mikilvæga skref með framkvæmd skrifborðsæfingar sem skilaði miklum lærdómi fyrir áframhaldandi öryggisvinnu.

Ragnar Sigurðsson

upplýsingaöryggisráðgjafi

Ábyrgð í þróun og rekstri kerfa sem meðhöndla heilbrigðisgögn

Sem heilbrigðistæknifyrirtæki þróar og rekur Helix kerfi sem meðhöndla viðkvæm heilbrigðisgögn og sinna þjónustu sem skiptir miklu máli fyrir viðskiptavini. 

Fyrir okkur er þetta mikilvægur hluti af markvissum undirbúningi. Fyrir fyrirtæki sem þróar og rekur kerfi sem meðhöndla viðkvæm heilbrigðisgögn er öryggi grundvallarþáttur í ábyrgri starfsemi. Æfingar sem þessar styrkja teymið og tryggja að við séum tilbúin að bregðast hratt og faglega við ef upp kemur öryggisatvik.

Guðmundir Sigurðsson

Öryggisstjóri Helix

Guðmundur Sigurðsson öryggisstjóri Helix
Guðmundur Sigurðsson öryggisstjóri Helix

Deildu gleðinni