alt missing

31/08/2026

Blogg

Myndir: Fjölsóttur viðburður um öryggi sjúkragagna

Við hjá Helix stóðum nýlega fyrir viðburði um öryggi sjúkragagna á Vox Club á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem netöryggi í heilbrigðisþjónustu var til umræðu. Innlendir og erlendir sérfræðingar ræddu vaxandi netógnir við heilbrigðisþjónustu og hvernig byggja megi upp betri viðbúnað og seiglu.

Máni Arnarsson var fundarstjóri
Máni Arnarsson var fundarstjóri

Netöryggi í heilbrigðisþjónustu er orðið að rekstrar- og öryggismáli sem snertir ekki aðeins upplýsingatæknideildir, heldur einnig stjórnendur, starfsfólk og öryggi sjúklinga. Þetta er lykilforsenda öruggrar heilbrigðisþjónustu, trausts almennings og framtíðarþróunar í heilbrigðiskerfinu, ekki síst þegar ný tækni, gervigreind og aukin tenging lækningatækja skapa bæði ný tækifæri og nýjar áskoranir fyrir öryggi upplýsinga og þjónustu.

65% aukning á árásum milli ára

Helstu skilaboð til stjórnenda voru að greina hvaða kerfi og gögn séu mikilvægust, æfa viðbrögð við atvikum, skilja kröfur laga og reglna, og byggja upp menningu þar sem netöryggi er sameiginleg ábyrgð alls starfsfólks. Markmiðið er ekki aðeins að koma í veg fyrir árásir, heldur að tryggja að þjónustan geti haldið áfram og jafnað sig hratt þegar áföll dynja yfir.

Vallý Helgadóttir forstöðumaður þjónustu og rekstrar hjá Helix
Vallý Helgadóttir forstöðumaður þjónustu og rekstrar hjá Helix

Vallý Helgadóttir frá Helix opnaði viðburðinn og benti á að umfang ógnarinnar færi vaxandi. Hún vísaði meðal annars til talna frá Google Threat Intelligence sem sýna að 326 fórnarlömb í heilbrigðis- og lyfjageiranum hafi verið skráð á árinu, að meðaltali um tíu á viku. Samkvæmt sömu gögnum er um að ræða 65% aukningu milli ára.

Öryggi sjúkragagna er ekki eitthvað verkefni sem ein stofnun, eitt fyrirtæki eða ein starfsstétt leysir upp á eigin spýtur. Netöryggi í heilbrigðisþjónustu er ekki lengur bara mál upplýsingatæknideildarinnar. Það er mál sem varðar öryggi sjúklinga, fjárhag, persónuvernd og viðnámsþrótt, og á því fullt erindi á borð æðstu stjórnenda.

Vallý Helgadóttir

Forstöðumaður þjónustu og rekstrar hjá Helix

Fyrirbyggjandi öryggi getur skipt sköpum

Caitlyn Alexander og Nadia Meer frá KPMG í Bretlandi opnuðu erindaröðina og spurðu hvort íslenska heilbrigðiskerfið væri tilbúið fyrir næstu netárás. Þær fóru meðal annars yfir raunveruleg dæmi um netatvik, lærdóminn sem draga má af þeim og hvaða lykilspurningum stjórnendur heilbrigðisstofnana þurfa að geta svarað til að tryggja öryggi og samfellu í þjónustu.

Í erindi þeirra kom fram að heilbrigðisþjónusta er meðal þeirra innviða sem verða hvað helst fyrir netárásum, og að áhrif árása ná langt út fyrir tæknikerfin sjálf. Traust sjúklinga, samfella þjónustu og öryggi gagna geta öll verið í húfi þegar lykilkerfi stöðvast eða verða fyrir árásum. Þær kynntu alþjóðleg dæmi sem sýna hvernig netárásir geta haft áhrif á bæði þjónustu, rekstur og orðspor heilbrigðisstofnana.

Caitlyn Alexander og Nadia Meer frá KPMG í Bretlandi
Caitlyn Alexander og Nadia Meer frá KPMG í Bretlandi

Meðalkostnaður 804 milljónir 

Guðrún Valdís Jónsdóttir frá Syndis tók næst við og talaði um forvarnir og afleiðingar. Hún fjallaði um hvað hægt væri að gera til að minnka líkurnar á að netöryggisatvik komi upp og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta undirbúið viðbrögð sín fyrir fram. Hún benti jafnframt á að meðalkostnaður netárása í heilbrigðisþjónustu væri 804 milljónir króna, samkvæmt skýrslu frá IBM en það gerir heilbrigðisgeirann að dýrustu atvinnugreininni 13. árið í röð m.t.t. netárása.

Guðrún Valdís Jónsdóttir
Guðrún Valdís Jónsdóttir

Jóhannes Stefánsson, öryggisstjóri hjá Stafrænni heilsu, sneri sér svo að framtíðinni og fór yfir hvert greinin væri að stefna og hvað þyrfti að vera til staðar svo íslenskt heilbrigðiskerfi standi styrkum fótum gagnvart vaxandi netógnum.

Jóhannes Stefánsson, öryggisstjóri hjá Stafrænni heilsu
Jóhannes Stefánsson, öryggisstjóri hjá Stafrænni heilsu

Öryggi krefst stöðugrar vinnu

Að lokum steig Ari Vésteinsson, upplýsingatæknistjóri hjá Helix, á svið og fór yfir mismunandi stig hýsingar og öruggs reksturs, allt frá grunnþjónustu til víðtækari öryggisþjónustu með meðal annars vöktun og virkara eftirliti.

Hann benti á að þótt aukin þjónusta og öryggi kunni að fela í sér hærri mánaðarlegan kostnað geti sú fjárfesting reynst lítil í samanburði við þann kostnað og röskun sem netöryggisatvik getur haft í för með sér. Öryggi sé því ekki stilling sem hægt sé að setja upp einu sinni, heldur stöðug vinna sem byggir á góðum kerfum, þjálfuðu starfsfólki og æfðum ferlum.

Örugg og áreiðanleg hýsing á sjúkraskrá

Helix sér um heildarrekstur Sögu og þeirra innviða sem kerfið keyrir á. Með því fá viðskiptavinir aðgang að sérhæfðri rekstrar- og öryggisþekkingu án þess að þurfa að byggja hana upp hver fyrir sig.

Nánar

Það sem stendur upp úr eftir viðburðinn er hversu mikilvægt er að öryggi sjúkragagna sé hugsað sem órjúfanlegur hluti af öruggum rekstri í heilbrigðisþjónustu. Þetta er ekki verkefni sem er klárað, heldur stöðugt viðfangsefni sem krefst skýrrar ábyrgðar, traustra innviða, þjálfaðs starfsfólks og reglulegrar endurskoðunar og æfinga. Með vaxandi netógnum þar þetta að vera ofarlega á dagskrá stjórnenda í heilbrigðisþjónustur.

Arna Harðardóttir

Framkvæmdastjóri Helix

Við viljum þakka öllum sem komu á viðburðinn kærlega fyrir komuna. Það var frábært að sjá hversu mikill áhugi er á þessu mikilvæga viðfangsefni, og að sjá fólk úr ólíkum geirum innan heilbrigðiskerfisins koma saman.

Misstirðu af viðburðinum? Fáðu upptökur sendar í pósti

Deildu gleðinni