background image
alt missing

12/03/2025

Viðburður

Örnámskeið | Endurkoma og eftirfylgni einstaklings

Á þessu örnámskeiði er fjallað um hvernig heilbrigðisstarfsmaður getur undirbúið sig fyrir komu einstaklings. Farið verður í Textasýn, Forsíðu sjúklings og Forsíðu starfsmanns.

12/03/25 - 12/03/25

Teams | Fjarfundur

Námskeiðið er fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk sem notar Sögu og er um 20-25 mín. Í lok námskeiðs er boðið upp á opnar fyrirspurnir.

Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Skráðu þig hér

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.