
03/04/2025
Viðburður
Örnámskeið í Sögu fyrir læknanema
Þetta Örnámskeið í Sögu sjúkraskrá er sérsniðið að læknanemum sem eru á leið á vinnumarkaðinn. Það verður farið yfir grunnatriði við skráningu í Sögu, bæði fyrir heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir. Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.
03/04/25 - 03/04/25
17:00 - 17:45
Teams | Fjarfundur
Þetta Örnámskeið í Sögu sjúkraskrá er sérsniðið að læknanemum sem eru á leið á vinnumarkaðinn. Það verður farið yfir grunnatriði við skráningu í Sögu, bæði fyrir heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir.
Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.
Skráðu þig hér

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir
Þjónustusérfræðingur hjá Helix
Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.