background image
Læknar tala saman á heilsugæslu

20/03/2024

Viðburður

Meðferðareining | Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á skráningu hjúkrunarfræðinga/sjúkraliða í Meðferðareiningu.

20/03/24 - 20/03/24

Teams - Fjarnámskeið

Fjallað er almennt um skráningu á hjúkrunargreiningum, framvindunótum og verkþáttum. Einnig verður farið í skráningu í Upplýsingaskrá og Útskriftaráætlun. Loks verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær um Meðferðareininguna.

Hér fyrir neðan má finna upptöku af námskeiðinu sem er liðið.

Örnámskeið: Saga sjúkraskrá

Meðferðareining | Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á skráningu hjúkrunarfræðinga/sjúkraliða í Meðferðareiningu.

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.