
24/09/2026
Blogg
Nýjung í Sögu: Gervigreind styður við skráningu heilbrigðisstarfsfólks
Notendur Sögu geta nú nýtt gervigreind til að styðja við skráningu beint inn í sjúkraskrá. Lausnin Skríban frá Careflux er nú samþætt við Sögu og því hægt að nota hana án þess að skipta á milli kerfa.
Careflux er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðistækni sem var stofnað árið 2024 af Steindóri Ellertssyni, sérnámslækni í heimilislækningum, ásamt Stefáni Ólafssyni lektor og Hrafni Loftssyni dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Til þess að búa til eins góðar lausnir og hægt er þarf hver aðili að vera góður í sínu. Þá verður tengjanleikinn lykilatriði og þegar hann er góður er hægt að tengja bestu lausnirnar saman. Fyrirtæki verða þannig mjög góð í ákveðnum hlutum og tengjanleikinn gerir það að verkum að hægt er að sameina styrkleika þeirra, á þann hátt skapast meiri ávinningur fyrir notandann.
Steindór Ellertsson
Framkvæmdastjóri Careflux
Einfaldari skráning í daglegu vinnuflæði
Með Skríbunni er hægt að taka upp samtal og fá drög að klínískri nótu sem notandinn fer yfir áður en hún er skráð í sjúkraskrá. Þannig getur gervigreindin tekið að sér hluta af þeirri vinnu sem áður þurfti að vinna handvirkt. Ávinningurinn er því einfaldara vinnuflæði og minni tími í skráningu og getur heilbrigðisstarfsfólk nýtt sinn dýrmæta tíma í önnur verkefni og samskipti við sjúklinga.


Lausn sem verður hluti af núverandi vinnuflæði
Samþættingin við Sögu gerir það að verkum að Careflux fellur beint að því verklagi sem er í notkun nú þegar. Það þarf ekki að opna annað kerfi, færa upplýsingar á milli eða breyta því hvernig unnið er. Tæknin verður þannig hluti af núverandi vinnuflæði í stað þess að bæta við nýju og skapar þannig minni röskun og meiri möguleika á að nýta ávinning hennar í framkvæmd.
Nýsköpun í samspili reynslu og hraða
Hjá Helix erum við spennt fyrir samstarfi við nýsköpunarfyrirtæki og viljum skapa fleiri tækifæri fyrir nýjar lausnir til að verða hluti af heilbrigðisþjónustunni.

Þetta samstarf sýnir vel hvernig nýsköpun í heilbrigðiskerfinu getur hraðast þegar fyrirtæki vinna saman og fá tækifæri til að einbeita sér að sinni sérfræðiþekkingu. Þannig verða til lausnir sem skila raunverulegum ávinningi fyrir heilbrigðiskerfið.
Raunveruleg nýsköpun verður til í samspili reynslu og hraða. Hún verður ekki til hjá einu fyrirtæki eða með einni lausn heldur í samvinnu þar sem allir stefna að sama markmiði.
Arna Harðardóttir
Framkvæmdastjóri Helix
Hægt er að lesa meira um Skríbuna hér
Viltu vita meira?
Deildu gleðinni