
07/07/2026
Blogg
Saga styður nú rauntímasendingar sérfræðireikninga til SÍ
Undanfarna mánuði höfum við hjá Helix unnið að verkefni tengdu rauntímasendingum á reikningum sérfræðilækna utan stofnana úr Sögu sjúkraskrá til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ).
Rauntímasendingar til SÍ hafa tíðkast í apótekum og sjúkraþjálfurum til margra ára og er verið að færa sérfræðireikninga í sambærilegt fyrirkomulag með þessum breytingum. Þetta tryggir að tryggingarstaða sjúklinga hjá SÍ er alltaf uppfærð í rauntíma, en breytingarnar munu tryggja öruggari greiðslur frá SÍ til lækna en einnig verður vinna við reikninga mun einfaldari en hefur verið.
Samstarf sem skilar árangri
Verkefnið hefur verið umfangsmikið og hefur verið unnið í afar góðri samvinnu við starfsfólk Sjúkratrygginga Íslands. Einnig höfum við hjá Helix notið dýrmætra ráðlegginga og aðstoðar frá fulltrúum Sjónlags, Orkuhússins og Læknastöðvarinnar Glæsibæjar á þróunartímanum. Undanfarnar vikur hafa ábendingar frá Klíníkinni einnig nýst okkur vel við að ljúka síðustu áföngum verkefnisins.
Læknar hjá Sjónlagi, Lækningu Lágmúla og Læknastofum Akureyrar voru jafnframt tilbúnir til að prófa þetta fyrirkomulag í mars og apríl. Framlag þeirra var ómetanlegt við að koma verkefninu af stað og sannreyna virkni bæði kerfa SÍ og Sögu við raunverulegar aðstæður.
Næstu skref
Nú þegar senda fjölmargir læknar reikninga í rauntíma og stefnt er að því að allir reikningar, þar á meðal efnisgjöld, verði farnir að sendast til SÍ á haustmánuðum.
Haldið verður áfram í haust með næstu skref í rauntímasendingum reikninga í samræmi við vegferð Sjúkratrygginga Íslands.
Deildu gleðinni