alt missing

25/06/2026

Blogg

Áhrif stafrænnar tækni á hjúkrunarheimilum

Henný Björk Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í stafrænni heilbrigðistækni birti nýlega ritrýnda rannsókn í Tímariti hjúkrunarfræðinga, fyrstu rannsókn sinnar tegundar á Íslandi svo vitað sé, sem mælir með blönduðum aðferðum áhrif stafrænnar heilbrigðistækni á daglegt starf hjúkrunarfræðinga.

Greinin er byggð á lokaverkefni í meistaranámi í stafrænni heilbrigðistækni (e. Digital health) við Háskólann í Reykjavík og byggir á 17 viðtölum og 58 klukkustunda athugun á fimm hjúkrunarheimilum.

Niðurstöðurnar varpa ljósi á áhrif tveggja lausna, Iðunnar og Lyfjavaka, á daglegt starf vaktstjóra hjúkrunar og sýna fram á mælanlegan ávinning á þremur sviðum: tímasparnaður, aukið öryggi í lyfjagjöf og meiri samvera með íbúunum

Henný Björk Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í stafrænni heilbrigðistækni
Henný Björk Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í stafrænni heilbrigðistækni

95 mínútur meira með íbúunum á hverri vakt með Iðunni

Á vöktum þar sem Iðunn var í notkun var tíminn sem vaktstjórar hjúkrunar vörðu í beinum samskiptum við íbúa að meðaltali 95 mínútum lengri samanborið við vaktir án lausnarinnar. Skráningartími í sjúkraskrána styttist um 66% úr 39 mínútum í 13 mínútur og stöðufundir og vaktaskipti styttust um 54 mínútur.

Iðunn er hjálpartæki, sem veitir íbúum betri umönnun, af því þar er allt frá A-Ö sem þarf að gera.

Þátttakandi í rannsókninni

Vaktstjóri hjúkrunar

Það þýðir ekki að hjúkrunarfræðingarnir séu ekki að vinna þennan tíma sem sparast, tímanum er bara varið öðruvísi.

Þátttakandi í rannsókninni

Deildarstjóri

Lyfjavaki: úr 50% í 100% skráningarhlutfall

Þar sem Iðunn og Lyfjavaki voru komnar í virka notkun ríkti almenn ánægja með lausnirnar og starfsfólk var sammála um að þær stuðluðu að auknu öryggi, bæði fyrir starfsmenn og skjólstæðinga. Bætt skráning bætti upplýsingaflæði milli vakta, styrkti yfirsýn og stuðlaði að meiri samfellu í þjónustunni.

Lyfjavaki hafði sérstaklega skýr áhrif á öryggi í lyfjagjöf. Þar sem lausnin var í notkun var lyfjagjöf skráð í 100% tilvika samanborið við 50% þar sem enn var notast við pappírsblöð. Smáforritið virkar sem stöðugt eftirlitskerfi sem staðfestir rétta framkvæmd, eykur meðvitund um hvaða lyf á að gefa og gefur viðvörun ef eitthvað er afbrigðilegt.

Það er fegurðin við Lyfjavaka, kerfið er alltaf að tvítékka þig.

Þátttakandi í rannsókninni

Vaktstjóri hjúkrunar

Rannsóknin sýndi að þar sem pappír var notaður stóðu vaktstjórar að miklu leyti á minninu. Lyfjavaki breytir þessari menningu.

Þú gleymir frekar þegar þú notar pappír, sem leiðir til fleiri mistaka. Ólíkt Lyfjavaka, er ekkert á blaði til að minna þig á. Kerfið lætur þig vita ef eitthvað er afbrigðilegt með litakóða sem hvetur þig til að bregðast við.

Þátttakandi í rannsókninni

Vaktstjóri hjúkrunar

Innleiðingin skiptir máli

Rannsóknin undirstrikar að árangurinn er ekki sjálfgefinn, vandvirkni í innleiðingu skiptir máli. Þar sem deildarstjórar tóku virkan þátt, buðu upp á einstaklingsmiðaða þjálfun og fylgdust með framvindu, gekk innleiðingin mun betur. Þar sem reiða var á hópkynningar einar og sér náði sumt starfsfólk ekki tökum á lausninni.

Það er frábært fyrir okkur að sjá þessar niðurstöður svart á hvítu. Þetta er staðfesting á því að lausnirnar eru að gera það sem þæra eiga að gera, auka tíma starfsfólks með íbúum og efla öryggi.

Þorbjörg Þórhildur Snorradóttir

Vörustjóri Iðunnar hjá Helix

Lestu greinina í heild sinni

Rannsóknin er birt í 1. tbl. 102. árgangs Tímarits hjúkrunarfræðinga (2026. Ef þú vilt kynna þér niðurstöðurnar nánar þá er greinin aðgengileg hér.

Lesa greinina í heild sinni
Maður að nota app í síma