
27/04/2026
Blogg
Tækninýting ársins: Silva bætir tímabókanir í heilbrigðisþjónustu
Silva frá Helix hlaut á dögunum Íslensku vefverðlaunin í flokknum Tækninýting ársins. Lausnin einfaldar tímabókanir og tilvísanir í heilbrigðisþjónustu með sjálfvirkni, sem dregur úr handavinnu, styttir biðlista og bætir vinnuflæði.
Verðlaunin undirstrika mikilvægi nýrrar tækni í að bæta þjónustu þar sem ekki er lengur nægjanlegt að bæta einstaka hluta ferlisins heldur þarf að endurhugsa það í heild.
Samræmt ferli frá tilvísun að tíma
Silva er hönnuð til að einfalda ferlið frá tilvísun að bókuðum tíma og skapa skýra heildarmynd. Lausnin sameinar alla þætti í eitt flæði sem gerir það kleift að forgangsraða rétt og nýta tíma betur. Þegar grunnurinn er í lagi geta sjúklingar tekið virkan þátt, bókað sjálfir og nálgast réttar upplýsingar á réttum tíma.

Með Silvu erum við að leysa kjarna vandans með betri yfirsýn, forgangsröðun og samhæfingu.
Einar Geirsson
Forstöðumaður nýþróunar hjá Helix

Allt sem þarf fyrir skilvirkari móttöku
Silva styður við einfaldara daglegt starf. Skjólstæðingar geta bókað og staðfest tíma sjálfir, á meðan starfsfólk fær rauntímayfirsýn yfir biðlista og getur forgangsraðað með einföldum hætti.
Lausnin:
Styður beina bókun í dagatöl Sögu
Býður upp á sjálfsafgreiðslu fyrir skjólstæðinga
Beitir yfirsýn yfir tilvísanir og biðlista
Tryggir örugga hýsingu og gagnavörslu
Getur starfað sem sjálfstæð lausn með eða án annarra kerfa
Niðurstaðan er skýrara flæði, betri nýting á tíma og aukið svigrúm fyrir faglega vinnu.
Lausn í takt við þróunina
Með auknu aðgengi sjúklinga að eigin gögnum og tilkomu European Health Data Space (EHDS) verða gögn hreyfanlegri milli kerfa og landa. Þessi þróun kallar móttökuferli sem eru samræmd, gagnadrifin og sjálfvirk þar sem það á við.
Silva er hönnuð með þetta í huga og nýtist bæði sem sjálfstæð lausn og með öðrum kerfum, þar á meðal Sögu. Hún uppfyllir kröfur um öryggi og persónuvernd og aðlagast að ólíkum rekstrarumhverfum.
Nánar um Silvu hér
Viltu vita meira um Silvu?

Höfundur bloggs
Einar Geirsson
Forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix Health
Deildu gleðinni