background image
alt missing

18/03/2024

Viðburður

Afgreiðslukerfi Sögu | Móttökuritarar

Á þessu námskeiði er fjallað um afgreiðslukerfið í Sögu og er hugsað fyrir móttökuritara en aðrar fagstéttir sem nota Afgreiðsluna velkomnar. Hér fyrir neðan má finna upptöku af námskeiðinu sem er liðið.

18/03/24 - 18/03/24

Teams - Fjarfundur

Örnámskeið Saga sjúkraskrá

Afgreiðslukerfi Sögu | Móttökuritarar

Fjallað verður um helstu aðgerðir í Afgreiðslunni í Sögu, t.d. tímabókanir og reikningagerð. Einnig verður tekið fyrir það sem þjónustudeild Helix fær oftast spurningar um.

Fyrirlesari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.