
13/11/2024
Viðburður
Forsíða starfsmanns | Allir
Á þessu námskeiði er fjallað um almenna skráningu í Forsíðu starfsmanns. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á ýmsar flýtileiðir í skráningu í Forsíðu starfsmanns með það í huga að stytta skráningartíma notenda.
13/11/24 - 13/11/24
12:00 - 12:45
Teams - Fjarnámskeið
Einnig verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær um skráningu í Forsíðu starfsmanns.
Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg. Lokað verður fyrir skráningu kl. 11:00 þann dag sem námskeið fer fram og hlekkur sendur á þau sem eru skráð.
Upptaka | Örnámskeið: Saga sjúkraskrá
Forsíða starfsmanns | Allir
Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir
Þjónustusérfræðingur hjá Helix
Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.