background image
alt missing

18/09/2024

Viðburður

Heimahjúkrunarumsjón | Deildar- og teymisstjórar í heimahjúkrun

Á þessu námskeiði er fjallað um skráningu í heimahjúkrunarumsjón. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á ýmsar flýtileiðir í skráningu í Heimahjúkrunarumsjón með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

18/09/24 - 18/09/24

12:00 - 12:45

Teams - Fjarnámskeið

Við tökum einnig fyrir algengustu spurningarnar sem þjónustudeild Helixfær um skráningu í heimahjúkrunarumsjón.

Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Skráning á námskeið

Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.