background image
Hjúkrunarfræðingur hlustar á barn

03/04/2024

Viðburður

Íhlutir, Mælingar og Dagplan | Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar

Á þessu örnámskeiði er almenn kynning á einingunum Íhlutir, Mælingar og Dagplan deildar. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á flýtileiðir í þessum einingum með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

03/04/24 - 03/04/24

Einblínt er á skráningu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða en aðrar fagstéttir sem nota þessar einingar eru velkomnar. Loks verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær um þessar einingar. Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Fjarnámskeið | Streymt á Teams | Sjá upptöku hér fyrir neðan

Örnámskeið: Saga sjúkraskrá

Íhlutir, Mælingar og Dagplan | Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar

Á þessu örnámskeiði er almenn kynning á einingunum Íhlutir, Mælingar og Dagplan deildar. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á flýtileiðir í þessum einingum með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.