background image
a woman in a hospital gown holding a baby

09/10/2024

Viðburður

Mæðraskrá | Ljósmæður á fæðingardeildum

-Ný dagsetning- Á þessu örnámskeiði er fjallað um almenna skráningu í meðgönguhluta Mæðraskrárinnar. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á ýmsar flýtileiðir í skráningu í Mæðraskrá með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

09/10/24 - 09/10/24

12:00 - 12:45

Teams - Fjarnámskeið

Við tökum einnig fyrir algengustu spurningarnar sem þjónustudeild Helix fær um skráningu í fæðingarhluta mæðraskrárinnar.

Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Skráning á námskeið

Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.