background image
Læknir að skrá sig inn í sögukerfið

17/04/2024

Viðburður

Miðlægt lyfjakort | Læknar

Örnámskeið þar sem farið er yfir helstu aðgerðir í Miðlægu lyfjakorti. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á flýtileiðir í Miðlægu lyfjakorti með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

17/04/24 - 17/04/24

12:00 - 12:30

Teams - Fjarnámskeið

Við förum einnig yfir nýjungar sem eru framundan í Miðlægu lyfjakorti. Loks verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær um Miðlægt lyfjakort.

Hér fyrir neðan má finna upptöku af námskeiðinu sem er liðið.

ÖRNÁMSKEIÐ: SAGA SJÚKRASKRÁ

Miðlægt lyfjakort | Læknar

Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.