background image
alt missing

27/08/2026

Viðburður

Öryggi sjúkragagna: Frá viðbragði til viðbúnaðar

Eru sjúkragögnin á Íslandi örugg? Á þessum viðburði ræða bæði innlendir og erlendir sérfræðingar hvernig efla megi öryggi sjúkragagna og byggja upp viðbúnað sem stenst kröfur framtíðarinnar.

27/08/26

16:00 - 18:30

Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica

Netógnir gegn heilbrigðisþjónustu verða sífellt flóknari og áhrif þeirra geta verið víðtæk. Á viðburðinum verður farið yfir stöðu netöryggis í íslensku heilbrigðiskerfi, helstu áskoranir og hvaða skref þarf að stíga til að styrkja viðbúnað, seiglu og vernd sjúkragagna.

Sjónarhornin verða margvísleg: frá ytri ógnum og stefnumótun til öruggrar hönnunar, uppbyggingar og reksturs þeirra kerfa og innviða sem heilbrigðisþjónustan byggir á.

Fundarstjóri er Máni Arnarsson, leikari og verkfræðingur.

Nánari dagskrá verður kynnt á næstu dögum en hægt er að tryggja sér sæti nú þegar.

Í lok viðburðar verður boðið upp á léttar veitingar og spjall.

Athugið að fullbókað er á viðburðinn. Skráðu þig á biðlista hér að neðan og við látum vita ef pláss losnar.

Fullbókað! Skráið ykkur á biðlista hér fyrir neðan

Dagskrá

Opnun viðburðar

Vallý Helgadóttir, Helix

Er íslenska heilbrigðiskerfið tilbúið fyrir næstu netárás?

Netárásir á heilbrigðisstofnanir eru ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær. Í þessu erindi fjalla sérfræðingar KPMG um hvers vegna netöryggi er lykilforsenda öruggrar og traustrar heilbrigðisþjónustu, hvaða ógnir og þróun eru að móta áhættuumhverfið í dag og hvaða áhrif netatvik geta haft á starfsemi og þjónustu við sjúklinga. Með hliðsjón af raunverulegum dæmum verður fjallað um lærdóm af netatvikum, hvernig byggja má upp virkan viðbúnað og seiglu, og hvaða lykilspurningum stjórnendur heilbrigðisstofnana þurfa að geta svarað til að tryggja öryggi og samfellu í þjónustu.

Caitlyn Alexander og Nadia Meer, KPMG í Bretlandi

Netárásir: forvarnir og afleiðingar

Fjallað verður um áhrif netárása á fyrirtæki og starfsfólk þeirra, hvað við getum gert til að minnka líkur á að til netöryggisatvika komi, og hvernig við getum undirbúið viðbrögð okkar við atvikum.

Guðrún Valdís, Syndis

Guðrún Valdís Jónsdóttir, Syndis

Framtíð upplýsingaöryggis í heilbrigðisgeiranum: Hvert er planið?

Hér er varpað ljósi á hvert upplýsingaöryggi í heilbrigðisgeiranum er að stefna og hvað þarf að vera til staðar svo íslenskt heilbrigðiskerfi standi styrkum fótum gagnvart vaxandi netógnum.

Jóhannes Stefánsson, Stafræn heilsa

Frá hýsingu til öruggs reksturs

Öryggi er ekki stilling, öryggi er stöðug vinna. Í erindinu er fjallað um hvernig ábyrgur rekstur sjúkraskrárkerfis byggir á góðum upplýsingakerfum, þjálfuðu starfsfólki og æfðum ferlum.

Ari Vésteinsson, upplýsingatæknistjóri hjá Helix

Ari Vésteinsson, Helix

Léttar veitingar

Fyrirlesarar

Caitlyn, KPMG

Caitlyn Alexander

Cyber Security Assistant Manager hjá KPMG UK

Caitlyn starfar sem Cyber Security Assistant Manager hjá KPMG í Bretlandi og hefur víðtæka reynslu af netöryggisverkefnum innan heilbrigðisgeirans. Hún hefur meðal annars komið að þróun Secure by Design-ramma fyrir heilbrigðisstofnanir og innleiðingu netöryggisstefnu fyrir stórar stofnanir og fyrirtæki.

Nadia, KPMG

Nadia Meer

Director, Cyber hjá KPMG UK

Nadia starfar sem Director í netöryggisteymi KPMG í Bretlandi og sérhæfir sig í netöryggisumbreytingum í regluvörðum geirum. Hún hefur leitt umfangsmikil verkefni fyrir heilbrigðisstofnanir, mikilvæga innviði og alþjóðleg fyrirtæki með áherslu á viðbúnað, seiglu og öryggi.

Ari Vésteinsson, upplýsingatæknistjóri hjá Helix

Ari Vésteinsson

Upplýsingatæknistjóri hjá Helix

Ari er upplýsingatæknistjóri hjá Helix og býr yfir 30 ára reynslu á sviði hugbúnaðarþróunar og upplýsingatækni. Hann ber ábyrgð á rekstri upplýsingakerfa viðskiptavina sem eru í rekstri hjá Helix ásamt því að tryggja öruggan, stöðugan og skilvirkan rekstur á innri upplýsingakerfum Helix

Jóhannes Stefánsson

Öryggisstjóri hjá Stafrænni heilsu

Jóhannes er þverfaglegur skapari, lögmaður og öryggisstjóri (CISO) með víðtæka reynslu og sterka lausnamiðaða hugsun. Hann er einnig hugbúnaðarhönnuður og hefur rekið og viðhaldið flóknum tæknikerfum í meira en 5 ár.

Guðrún Valdís, Syndis

Guðrún Valdís Jónsdóttir

Forstöðumaður ráðgjafasviðs Syndis

Guðrún Valdís hefur starfað í tölvuöryggisgeiranum í 8 ár, bæði hérlendis og í Bandaríkjunum, en hún útskrifaðist sem tölvunarfræðingur frá Princeton University árið 2018. Hún starfar nú sem forstöðumaður ráðgjafarsviðs Syndis, en hefur áður fengist við innbrotsprófanir, öryggisráðgjöf og öryggisstjórnun.

Máni Arnarsson

Máni Arnarsson

Fundarstjóri

Máni Arnarson er leikari og verkfræðingur. Hann hefur leikið í ótal sýningum með Improv ísland auk þessa að skrifa og leika í leikverkum og sjónvarpsþáttum. Hann hefur starfað við hugbúnaðarþróun og ráðgjöf, samhliða því að leika og kenna spuna hjá Improv Ísland.