background image
alt missing

22/05/2024

Viðburður

Skráning í Sögu | Sérgreinalæknar

Á þessu örnámskeiði er fjallað um helstu skráningarleiðir sérgreinalækna í Sögu. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á ýmsar flýtileiðir í skráningu í Sögu með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

22/05/24 - 22/05/24

12:00 - 12:30

Teams - Fjarnámskeið

Unnið með eyðublöð, F8/Útfylling blaða, Flýtitexta, Forsíða starfsmanns, Skilaboð, Vinnulisti, Rafræn skeyti og sendingu á XML skjali til SÍ. Loks verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær frá sérgreinalæknum.

Lokað hefur verið fyrir skráningu. Sjá upptöku neðar á síðu.

UPPTAKA | ÖRNÁMSKEIÐ: SAGA SJÚKRASKRÁ

Skráning í Sögu | Sérgreinalæknar

Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.