Dagur öldrunar 2026

13/03/2026

Blogg

Lausnir sem minnka álag og auka öryggi kynntar á Degi öldrunar

Helix tók þátt í Degi öldrunar 2026, sem haldinn var 12. mars á Hilton. Þema ráðstefnunnar í ár var „Forvarnir og endurhæfing“ og mikilvægi þess að þróa þjónustu í takt við þarfir þjónustuþega og samfélagsins.

Dagur öldrunar er haldinn af Fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga, Fagráði öldrunarhjúkrunar Landspítala, Félagi íslenskra öldrunarlækna, Iðjuþjálfafélagi Íslands, Miðstöð í öldrunarfræðum og Sjúkraþjálfarafélagi Íslands.

Helix var með kynningarbás á ráðstefnunni þar sem kynntar voru meðal annars lausnirnar Iðunn og Lyfjavaki, sem styðja við skilvirkari skráningu, aukið öryggi og betri yfirsýn í daglegu starfi heilbrigðisstarfsfólks.

Dagur öldrunar 2026
Dagur öldrunar 2026

Minni skráningarbyrði og meiri tími í umönnun

Iðunn smáforrit gerir starfsfólki kleift að skrá upplýsingar beint í sjúkraskrá í rauntíma. Starfsmaður merkir við verkþætti um leið og þeim er sinnt og skráningin færist sjálfkrafa í sjúkraskrá íbúans.

Rauntímaskráning með Iðunni:
  • Eykur yfirsýn yfir umönnun

  • Einfaldar uppflettingu fyrir RAI-mat

  • Dregur úr misskilningi í munnlegum fyrirmælum

  • Minnkar skráningarbyrði hjúkrunarfræðinga

Rannsóknir sýna að allt að 26 mínútur sparast við skráningu hjá hjúkrunarfræðingi á hverri vakt og með tilkomu Iðunnar fer allt að 67% minni tími í skráningar.

Aukið öryggi í lyfjagjöf

Á básnum kynnti Helix einnig Lyfjavaka, rafrænt lyfjaskráningarkerfi sem heldur utan um lyfjatiltekt og lyfjagjöf íbúa og tryggir rekjanleika lyfjagjafar.

Notkun Lyfjavaka veitir hjúkrunarfræðingum betri yfirsýn yfir lyfjagjöf og stuðlar að auknu öryggi 50% hjúkrunarfræðinga segja að lyfjaatvikum hafi fækkað eftir innleiðingu kerfisins.

Takk fyrir góð samtöl

Það var frábært að sjá allar þessar fjölbreyttu lausnir og deila þekkingu og hugmyndum um framtíð öldrunarþjónustu.

Við viljum þakka öllum þeim sem komu við á bás Helix fyrir góð og gagnleg samtöl. Sérstakar þakkir til þeirra sem skráðu sig í Sögusamfélag Helix, þar sem notendur Sögu geta tekið þátt í þróun kerfisins og haft áhrif á nýjar lausnir.

Dagur öldrunar 2026
Dagur öldrunar 2026

Deildu gleðinni