
14/09/2026
Blogg
Sögusamfélagið: rödd í þróun Sögu
Heilbrigðiskerfið er undir vaxandi álagi og tæknilausnir gegna sífellt stærra hlutverki í daglegu starfi heilbrigðisstarfsfólks. Það skapar gífurlega mörg tækifæri en einnig áskoranir um hvernig tæknin er nýtt. Í flóknu umhverfi getur verið krefjandi að koma þörfum endanotenda alla leið til þeirra sem þróa kerfið. Við hjá Helix stofnuðum nýlega Sögusamfélagið til að skapa beinni tengingu við notendur og tryggja að reynsla þeirra og þarfir skili sér inn í þróun Sögu.
Við viljum gefa notendum tækifæri til að taka virkan þátt í þróun á þeirra eigin vinnutæki og tryggja að þeirra rödd, reynsla og þarfir hafi áhrif á hugbúnaðinn sem þau nota á hverjum degi.
Héðinn Jónsson
Forstöðumaður þróunnar hjá Helix
Hvað er Sögusamfélagið?
Sögusamfélagið samanstendur af læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sem notar Sögu sjúkraskrárkerfið. Hlutverk hópsins er að tryggja að sjónarmið og reynsla notenda komist beint til þróunarteymis Sögu. Þannig fær teymið skýrari mynd af því sem skiptir notendur mestu máli, beint og milliliðalaust.
Hvernig virkar þetta?
Með Sögusamfélaginu viljum við hlusta á notendur Sögu á skipulagðan hátt og gefa þeim vettvang til að koma ábendingum, hugmyndum og reynslu á framfæri. Þannig geta notendur tekið þátt í samtalinu um hvernig kerfið þróast og hvað helst þarf að bæta.
Við höfum sent út opnar kannanir og einnig leitast eftir viðbrögðum við nýjungum í þróun. Við höfum fengið frábær og gagnleg komment sem nýtast okkur beint þróun. Nokkur hafa einnig samþykkt að taka þátt í notendaprófunum, þar sem þau fá að prófa nýjungar áður en þær fara í loftið og koma með ábendingar.
Þarna fá notendur tækifæri til að prófa nýjungar áður en þær fara í loftið og segja okkur hvað virkar og hvað má betur fara.
Héðinn Jónsson
Forstöðumaður þróunnar hjá Helix

Við erum þegar búin að fá frábær viðbrögð frá þeim sem eru byrjuð að fá efni frá okkur og erum að móta vinnulagið í samstarfi við hópinn sjálfan.
Héðinn Jónsson
Forstöðumaður þróunnar hjá Helix
Notendur taka þátt í þróuninni
Við viljum halda áfram að þróa Sögusamfélagið í samstarfi við hópinn og prófa fleiri leiðir til samtals, meðal annars Teams-fundi og fleiri notendaprófanir. Við erum mjög þakklát þeim sem hafa þegar tekið þátt og gefið sér tíma til að deila með okkur reynslu sinni og ábendingum.
Sögusamfélagið
Viltu vera með?
Sögusamfélagið er opið fyrir fleiri sem vilja taka þátt í þróun Sögu. Ef þú vinnur í Sögu og vilt deila reynslu, prófa nýjungar og koma ábendingum á framfæri, er þetta vettvangur fyrir þig.


Höfundur bloggs
Héðinn Jónsson
Forstöðumaður þróunar
Deildu gleðinni