
29/06/2026
Blogg
Tæknin er tilbúin en er stofnunin það?
Kevin Blanca Sola er hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni í Háskólanum í Reykjavík. Hann lauk nýverið starfsnámi hjá okkur í Helix í einum áfanga og fékk það verkefni að taka stöðumynd hjá heilbrigðisstofnun sem var að innleiða Vöku, ræða við starfsfólk og greina hvaða áhrif og ávinning lausnin hefði á starfsemina fyrir og eftir innleiðingu. Innleiðingin náði ekki að fara af stað á meðan á starfsnáminu stóð og því var ekki unnt að fylgja verkefninu eftir með þeim hætti sem upphaflega var lagt upp með.
Verkefnið tók því óvænta og áhugaverða stefnu. Í stað þess að fylgjast með innleiðingunni sjálfri beindi Kevin sjónum sínum að annarri spurningu: Hvað þarf að vera til staðar svo innleiðing nýrrar heilbrigðistækni geti gengið vel?

Innleiðing snýst um meira en tæknina
Vaka styður við eftirfylgni sjúklinga, hópmeðferðir og stafræna fræðslu. Með samþættingu við Sögu sjúkraskrá geta heilbrigðisstarfsmenn sent spurningalista, áminningar og fræðsluefni á einfaldan hátt. Í verkefni sínu ræddi Kevin við hjúkrunarfræðinga á umræddri heilbrigðisstofnun sem var að taka upp Vöku og kom skýrt fram að starfsfólk var jákvætt gagnvart lausninni og sá tækifæri til að bæta vinnuferli.
Þau sáu að Vaka gæti minnkað handavinnu, hjálpað með spurningalista og gefið betri yfirsýn yfir sjúklinga sem þurfa eftirfylgd.
Kevin Blanca Sola
Hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni
Jafnvel þegar góð tæknilausn er til staðar skiptir miklu máli að finna rétta tímann fyrir innleiðinguna og skapa starfsfólki svigrúm til að tileinka sér ný vinnubrögð. Tæknin skapar möguleikana, en árangurinn ræðst af því hvernig breytingin er innleidd og studd í daglegu starfi.
Tæknin sjálf er ekki nóg. Innleiðing, þjálfun og stuðningur við starfsfólk skiptir miklu máli.
Kevin Blanca Sola
Hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni
Hvað þarf til að innleiðing gangi upp?
Út frá viðtölum sínum við starfsfólk og þeirri reynslu sem hann safnaði í verkefninu tók Kevin saman nokkur atriði sem hann telur skipta máli þegar heilbrigðisstofnanir eru að undirbúa innleiðingu á nýrri tækni:
Kerfið þarf að passa inn í vinnuflæðið
Ef nýtt kerfi er upplifað sem aukaverkefni ofan á núverandi vinnu verður notkun þess takmörkuð. Það þarf að verða eðlilegur hluti af daglegu starfi.Starfsfólk þarf tíma til að læra
Þjálfun er ekki aukaatriði heldur forsenda árangurs. Fólk þarf svigrúm til að kynnast nýju kerfi áður en það verður hluti af daglegri þjónustu.Innleiðing ætti að fara fram í skrefum
Að byrja með einn sjúklingahóp eða eina deild getur minnkað áhættu og auðveldað lærdóm áður en lausnin er stækkuð.Stuðningur stjórnenda skiptir máli
Innleiðing er ekki bara tækni verkefni. Hún krefst forgangsröðunar, skýrrar stefnu og virks stuðnings stjórnenda.Hlusta þarf á starfsfólkið
Þau sem vinna með sjúklingunum á hverjum degi þekkja best hvar áskoranirnar liggja og hvar tæknin getur skapað mest virði.
Góður undirbúningur minnkar mótstöðu. Fólk er oft ekki á móti tækninni sjálfri, heldur breytingunni ef hún kemur of hratt eða án stuðnings.
Kevin Blanca Sola
Hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni
Þegar innleiðingar mistakast er það sjaldnast vegna tækninnar. Oftar er ástæðan sú að breytingin kemur á röngum tíma, án nægilegs undirbúnings eða án þess að starfsfólk fái tækifæri til að tileinka sér ný vinnubrögð.
Handavinna í stafrænum heimi
Það kom mér á óvart hversu mikil handavinna er enn í eftirfylgni sjúklinga. Þó að stafræn kerfi séu til er vinnuferlið ekki alltaf miðlægt eða sjálfvirkt.
Kevin Blanca Sola
Hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni
Starfsfólk þarf oft að fara á milli mismunandi lausna til að fylgjast með niðurstöðum og halda utanum meðferð sjúklings. Þetta kostar tíma, eykur álag og skapar meiri hættu á að upplýsingar glatist í flæðinu. Einmitt þess vegna skiptir innleiðing nýrra lausna sem spara tíma og minnka álag miklu máli.
Þetta verkefni var gott dæmi um hvernig innleiðing lítur oft út í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisstarfsfólk er undir miklu álagi og oft er skortur á mannafla. Þetta er því raunveruleikinn sem tækniþróun í heilbrigðisþjónustu þarf að taka tillit til. Fyrir nema er það mjög gagnlegt að kynnast þessum aðstæðum í starfsnámi og fá innsýn í hvernig slíkar innleiðingar ganga fyrir sig í raun. Við þökkum Kevin og Háskóla Reykjavíkur kærlega fyrir samstarfið.
Þorbjörg Þórhildur Snorradóttir
Vörustjóri Vöku hjá Helix

Viltu vita meira um Vöku?
Vaka gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að halda utan um hópmeðferðir, spurningalista og senda rafrænt fræðsluefni úr Sögu sjúkraskrá.

Deildu gleðinni