Helix starfsfólk brosandi að horfa á tölvuskjá

09/07/2026

Blogg

Hvað þarf að hafa í huga við hýsingu á sjúkraskrá?

Saga er gífurlega mikilvægt verkfæri í daglegum störfum heilbrigðisstarfsfólks. Þegar sjúkraskráin er aðgengileg, hröð og stöðug verður vinnuumhverfið betra og starfsfólk getur einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli, þjónustu við sjúklinga. Fyrir sjúklinga skiptir ekki síður máli að upplýsingar séu varðar, réttar og aðgengilegar þegar þeirra er þörf. 

Á bak við þetta liggur hýsingarumhverfið sem heldur kerfinu gangandi. Vel rekin hýsing stuðlar að stöðugum rekstri, verndar viðkvæm gögn og tryggir að unnið sé í nýjustu útgáfu Sögu.

Við hjá Helix sérhæfum okkur í hýsingu á Sögu og höfum áralanga reynslu af rekstri hennar. Hér förum við yfir nokkur atriði sem við teljum skipta miklu máli þegar kemur að öruggri og traustri hýsingu sjúkraskrár. 

Öryggi og vöktun allan sólarhringinn 

Netárásir eiga sér ekki einungis stað á skrifstofutíma. Þess vegna skiptir miklu máli að hýsingarumhverfi sjúkraskrár sé undir stöðugu eftirliti og að hægt sé að bregðast hratt við ef eitthvað óvænt kemur upp. 

SOC-innbrotsvöktun allan sólarhringinn, ásamt vöktun á innviðum og gagnagrunnum, getur skipt sköpum þegar bregðast þarf hratt við. Bakvakt og skýrt utanumhald tryggja jafnframt að málum sé fylgt eftir og að viðbrögð hefjist án tafar þegar á reynir. 

Tiltækileiki og rekstraröryggi 

Ef Saga liggur niðri getur það haft bein áhrif á þjónustu við sjúklinga. Þess vegna þurfa upptímamarkmið að vera skýr og uppfærslur skipulagðar með aðferðum sem lágmarka truflanir. 

Í hýsingarumhverfi leggjum við til að stuðst verði við uppfærsluaðferð sem tryggir lítinn eða engan niðritíma, slík aðferð felur í sér að ný útgáfa er keyrð samhliða þeirri eldri áður en notendur eru færðir yfir. Með því má halda niðritíma í lágmarki og tryggja stöðugri þjónustu sem skiptir sköpum þegar sjúkraskráin er hluti af daglegri umönnun. 

Viðbragðsáætlanir og endurheimt gagna 

Æskilegt er að til staðar séu skjalfestar viðbragðsáætlanir sem ná yfir viðbrögð við öryggisatvikum, hraða endurheimt gagna og viðbrögð ef gagnaver verður óaðgengilegt. Þær ná jafnframt yfir hvernig samskipti við viðskiptavini, tilkynningar til Persónuverndar og samstarf við lögreglu eru meðhöndluð þegar þess er þörf. Til að tryggja virkni slíkra ferla er einnig mikilvægt að þeir séu reglulega prófaðir og æfðir í raunverulegum aðstæðum, þannig að viðbrögð séu samstillt og hröð þegar á reynir. 

Staðsetning gagna 

Staðsetning gagna skiptir máli, bæði út frá rekstri og persónuvernd. Sjúkraskrárgögn eru viðkvæm og mikilvægt er að hafa skýra yfirsýn yfir hvar þau eru vistuð og undir hvaða lögsögu þau falla. Gagnageymsla innanlands getur einfaldað yfirsýn og utanumhald trúnaðaryfirlýsinga og meðferð gagna. 

Við teljum að það sé kostur fyrir íslenskar heilbrigðisstofnanir að gögn séu geymd innanlands, undir íslenskri lögsögu. Það getur aukið fyrirsjáanleika, skýrt ábyrgðarsvið og styrkt öryggi ef alþjóðlegar þjónustur eða tengingar verða fyrir truflunum. 

Regluverk og öryggisstjórnun 

Kröfur um öryggi og persónuvernd í heilbrigðisþjónustu aukast stöðugt. Persónuverndarlög, sjúkraskrárlöggjöf og nýjar reglur á borð við NIS2 gera ríkar kröfur um stjórnun upplýsingaöryggis. 

Mikilvægt er að hýsingaraðili sjúkraskrár sé með til staðar formlegt öryggisstjórnkerfi, vinni samkvæmt viðurkenndum öryggisstöðlum og geti sýnt fram á reglulegar úttektir og stöðugar umbætur. ISO 27001 vottun er þar lykilþáttur þar sem hún staðfestir að öryggi sé stjórnað markvisst og með mælanlegum hætti. 

Sérþekking á Sögu sem skilar öruggari og traustari rekstri 

Hjá Helix sérhæfum við okkur í heildarrekstri Sögu og þeirra innviða sem kerfið byggir á, studdum af skjalfestu ISO 27001 öryggisstjórnunarkerfi og 24/7 öryggisvöktun. 

Með því fá viðskiptavinir aðgang að sérhæfðri rekstrar- og öryggisþekkingu án þess að þurfa að byggja hana upp sjálfir. Helix sér um utanumhald, samhæfingu og rekstur þannig að heilbrigðisstofnanir geti einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi. 

Heilbrigðisstofnanir þurfa ekki að byggja upp eigin sérfræðiþekkingu á rekstri og öryggi sjúkraskrárkerfa. Með því að sameina rekstur, vöktun og sérþekkingu á einum stað verður umhverfið einfaldara, öruggara og stöðugra í daglegum rekstri.

Ari Vésteinsson

Upplýsingatæknistjóri Helix

Ari Vésteinsson, upplýsingatæknistjóri Helix
Ari Vésteinsson, upplýsingatæknistjóri Helix

Örugg og áreiðanleg hýsing á sjúkraskrá

Helix sér um heildarrekstur Sögu og þeirra innviða sem kerfið keyrir á. Með því fá viðskiptavinir aðgang að sérhæfðri rekstrar- og öryggisþekkingu án þess að þurfa að byggja hana upp hver fyrir sig.

Nánar