background image
alt missing

08/01/2025

Viðburður

Lykilatriði við skráningu í Sögu sjúkraskrá

Það sem allir þurfa að kunna í Sögu. Á þessu örnámskeiði verður farið yfir helstu flýtileiðir í almennri notkun á Sögu. Meðal annars verður fjallað um hvernig er fljótlegast að skipta um einingar, aðgang að nýjungum og vefhandbók Sögu, sjúklingaval, sjúklingastikuna, snjókornið og sendingu skilaboða til einstaklinga í Heilsuveru.

08/01/25 - 08/01/25

Teams | Fjarfundur

Námskeiðið er fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk sem notar Sögu og er um 20-25 mín. Í lok námskeiðs er boðið upp á opnar fyrirspurnir.

Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Myndband

Lykilatriði í Sögu | Upptaka

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.