background image
alt missing

11/12/2024

Viðburður

Vaka | Hópaumsjón, rafrænir spurningalistar og fræðsluefni.

Á þessu námskeiði er fjallað um almenna virkni í Vöku (áður Meðvera). Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á ýmsar flýtileiðir í skráningu í Vöku með það í huga að stytta skráningartíma notenda.

11/12/24 - 11/12/24

12:00 - 12:45

Teams - Fjarnámskeið

Á þessu námskeiði er fjallað um almenna virkni í Vöku, lausn sem gerir starfsfólki m.a. kleift að halda utan um hópa í Sögu og senda spurningalista og fræðsluefni rafrænt. Markmiðið með þessu námskeiði er að kenna notendum á ýmsar flýtileiðir í skráningu á lausninni með það í huga að stytta skráningartíma notenda. Einnig verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær um skráningu í Vöku. Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Námskeiðnu er lokið.

Upptaka | Örnámskeið: Saga sjúkraskrá

Vaka | Hópaumsjón, rafrænir spurningalistar og fræðsluefni.

Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.